Treyja Duncans verður hengd upp í rjáfur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2016 23:30 Duncan er goðsögn hjá San Antonio. vísir/getty
San Antonio Spurs mun heiðra Tim Duncan með því að hengja treyju hans, númer 21, upp í rjáfur í AT&T Center. Treyja Duncans verður hengd upp í rjáfur við hátíðlega athöfn eftir leik San Antonio og New Orleans Pelicans 18. desember næstkomandi. Félagið tilkynnti þetta í dag. Duncan lagði skóna á hilluna í sumar eftir 19 tímabil hjá San Antonio. Á þeim tíma vann liðið aldrei færri en 50 leiki, nema verkfallstímabilið 1998-99 þegar San Antonio vann 37 af 50 leikjum sínum. Á nítján ára ferli Duncans hjá San Antonio komst liðið sex sinnum í lokaúrslit og varð fimm sinnum NBA-meistari. Duncan, sem er af flestum talinn besti kraftframherji sem hefur spilað í NBA, var tvisvar sinnum valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar og þrisvar sinnum verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna. Duncan verður áttundi leikmaðurinn í sögu San Antonio sem fær treyjuna sína hengda upp í rjáfur. Hinir eru Bruce Bowen, Johnny Moore, Avery Johnson, James Silas, Sean Elliott, George Gervin og David Robinson.Tim Duncan to the rafters! We will retire No. 21 on December 18th in a special postgame ceremony » https://t.co/ysH8Epa5Hm pic.twitter.com/EPF8V8Cvj0— San Antonio Spurs (@spurs) November 16, 2016
NBA Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Fleiri fréttir Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum „Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins Sjá meira