Gautaborg kaupir Elías Má af Vålerenga Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. nóvember 2016 15:41 mynd/ifk
Sænska úrvalsdeildarliðið IFK Gautaborg hefur gengið frá kaupum á íslenska landsliðsframherjanum Elíasi Má Ómarssyni sem hefur verið á láni hjá liðinu síðustu mánuði. Þetta kemur fram á heimasíðu Gautaborgarliðsins. Elías Már kom á láni frá Vålerenga á miðju tímabil og hefur slegið í gegn hjá Gautaborg. Hann skoraði sex mörk í þrettán leikjum og ákvað sænska liðið því að nýta sér forkaupsrétt á leikmanninum og ganga frá samningi við hann sem er til þriggja ára og rennur út árið 2020. Þessi 21 árs gamli framherji sló í gegn með Keflavík í Pepsi-deildinni árið 2014 og var í kjölfarið keyptur til Vålerenga þar sem hann fékk lítið að spila framan af þessari leiktíð. Þá fór hann á láni til Gautaborgar og hefur ekki horft til baka. „Það er augljóslega frábært að ná samningum við Elías Má og vita að hann er okkar leikmaður. Við höfum séð hann þróast mikið hjá okkur og vonum að hann haldi því áfram,“ segir Mats Gren, yfirmaður knattspyrnumála hjá IFK Gautaborg, á heimasíðu liðsins. Elías Már er staddur með íslenska landsliðinu á Möltu þar sem strákarnir okkar mæta heimamönnum í vináttuleik.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Salah bætti fyrir vítaklúðrið og Liverpool raðaði inn mörkum í seinni Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn „Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Fótbolti Fleiri fréttir „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ „Við hefðum getað unnið 10-0“ Salah bætti fyrir vítaklúðrið og Liverpool raðaði inn mörkum í seinni Tottenham beit frá sér en Bayern München kjöldróg Ítalana „Enginn tími til að vorkenna sjálfum okkur“ Ríkisstjórn Senegal segir grun um spillingu vegna Afríkukeppninnar Börsungar fóru afar illa með Newcastle í seinni hálfleik Davíð hafði óvænt betur í bikarslag ungu íslensku framherjanna Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Sævar Atli þarf að fara í aðra aðgerð Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Arnar gagnrýndi Guardiola: „Þú þurftir ekki að eyðileggja allt“ „Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Gylfi í hópnum sem mætir Kanada og Haítí Svona var fundurinn þegar Arnar kynnti vesturfara Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Farsinn framlengist: Senegal áfrýjar til Alþjóðadómstólsins Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Ísland spilar í Tókýó í sumar „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Sjá meira