Dwayne Wade vann með Chicago á gamla heimavellinum | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. nóvember 2016 07:30
Dwayne Wade, leikmaður Chicago Bulls í NBA-deildinni í körfubolta, gerði það sem hann er vanur að gera í Miami í nótt og vann körfuboltaleik. Wade sneri í fyrsta sinn aftur á gamla heimavöllinn eftir að færa sig til Bulls en gestirnir höfðu betur í nótt, 98-95. Wade hafði samt mátulega hægt um sig í stigaskorun og setti þrettán stig. Jimmy Butler skoraði 20 stig og Rajon Rondo skoraði 16 stig og tók tólf fráköst. Hassan Whiteside skoraði 20 stig fyrir Miami sem er aðeins búið að vinna tvo af fyrstu sjö leikjum sínum. Steph Curry var stigahæstur Golden State sem vann öruggan sigur á Denver Nuggets á útivelli, 125-121. Curry skoraði í heildina 33 stig, tók fimm fráköst og gaf sjö stoðsendingar en hann hitti úr sjö af þrettán þriggja stiga skotum sínum. Fyrir leikinn var Kevin Durant, leikmaður Golden State, búinn að skora að minnsta kosti 20 stig í 72 leikjum í röð en þeirri hrinu er lokið. Durant skoraði 18 stig í nótt, tók níu fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Þá vann New Orleans Pelicans sinn fyrsta sigur í deildinni eftir að tapa fyrstu átta. Liðið lagði Milwaukee Bucks, 112-106, á útivelli en það var Anthony Davis sem innsiglaði sigurinn fyrir Pelicans undir lokin. Davis skoraði 32 stig og tók átta fráköst en hjá Bucks var Jabari Parker stigahæstur með 33 stig auk þess sem hann tók níu fráköst.Úrslit næturinnar: Milwaukee Bucks - New Orleans Pelicans 106-112 Miami Heat - Chicago Bulls 95-98 Denver Nuggets - Golden State Warriors 101-125 Sacramento Kings - LA Lakers 91-101
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira