Paul og Griffin í góðum gír í sigri LA Clippers | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. desember 2016 07:15 Chris Paul og Damian Lillard, leikstjórnendur LA Clippers og Portland, eigast hér við. vísir/afp
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Clippers virðist vera komið aftur á beinu brautina en í nótt lagði liðið Portland Trail Blazers að velli, 121-120. Blake Griffin og Chris Paul voru í góðum gír í liði Clippers í leiknum. Griffin skoraði 26 stig og tók 12 fráköst og Paul skoraði 21 stig og gaf 14 stoðsendingar. Hjá Portland var C.J. McCollum stigahæstur með 25 stig. Damian Lillard kom næstur með 24 stig en hann gaf einnig átta stoðsendingar. Portland er búið að tapa fjórum leikjum í röð. James Harden fór mikinn þegar Houston Rockets vann Brooklyn Nets á heimavelli, 122-118. Harden skoraði 36 stig, tók átta fráköst og gaf 11 stoðsendingar í sjöunda sigri Houston í röð. Liðið er í 4. sæti Vesturdeildarinnar. Brook Lopez skoraði mest fyrir Brooklyn, eða 26 stig. Miðherjinn tók hins vegar aðeins eitt frákast á þeim 32 mínútum sem hann spilaði. DeMar DeRozan skoraði 30 stig þegar Toronto Raptos vann Milwaukee Bucks, 122-100. DeRozan hitti úr sjö af 11 skotum sínum utan af velli og setti öll 15 vítin sín niður. Terrence Ross bætti 25 stigum við fyrir Toronto sem er í 2. sæti í Austurdeildinni. Giannis Antetokounmpo skoraði 30 stig og tók átta fráköst í liði Milwaukee sem er búið að tapa þremur leikjum í röð.Úrslitin í nótt: LA Clippers 121-120 Portland Houston 122-118 Brooklyn Toronto 122-100 Milwaukee Indiana 110-94 Charlotte Miami 112-101 Washington Dallas 112-92 Denver Sacramento 116-92 LA Lakers
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira