Sjöunda þrenna Westbrooks í röð dugði Oklahoma ekki til sigurs | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. desember 2016 11:07
Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Russell Westbrook var með þrefalda tvennu þegar Oklahoma City Thunder tapaði 99-102 fyrir Houston Rockets á heimavelli. Þetta var sjöundi leikurinn í röð þar sem Westbrook nær þrennu. Westbrook skoraði 27 stig, tók 10 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í liði Oklahoma sem er í 6. sæti Vesturdeildarinnar. Steven Adams átti einnig góðan leik fyrir Oklahoma; skoraði 24 stig, tók 10 fráköst og nýtti átta af níu skotum sínum utan af velli. James Harden, fyrrverandi liðsfélagi Westbrooks hjá Oklahoma, var aðeins einu frákasti frá því að ná þrennu í liði Houston. Harden skoraði 21 stig, tók níu fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Þríhöfða skrímslið hjá Cleveland Cavaliers var í góðum gír þegar meistararnir unnu öruggan sigur á Miami Heat, 114-84. Þetta var þriðji sigur Cleveland í röð en liðið er á toppnum í Austurdeildinni. Kevin Love skoraði 28 stig og tók 15 fráköst en hann hefur spilað vel að undanförnu. LeBron James var með 27 stig, átta fráköst og átta stoðsendingar gegn sínum gömlu félögum og Kyrie Irving skoraði 23 stig. Kyle Lowry skoraði 34 stig fyrir Toronto Raptors sem bar sigurorð af Boston Celtics, 94-101, á útivelli. Toronto er í 2. sæti Austurdeildarinnar. Al Horford og Avery Bradley skoruðu 19 stig hvor fyrir Boston sem var án síns stigahæsta manns, Isiah Thomas, í leiknum í nótt.Úrslitin í nótt: Oklahoma 99-102 Houston Cleveland 114-84 Miami Boston 94-101 Toronto Charlotte 109-88 Orlando Milwaukee 110-114 Atlanta Minnesota 90-117 Detroit Dallas 111-103 Indiana LA Lakers 115-119 Phoenix Sacramento 100-103 NY KnicksLeikur Oklahoma og Houston í draugsýn Kevin Love var heitur gegn Miami Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira