Enn einn stórleikur Harden Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2017 07:38 Harden hefur verið afar öflugur í liði Houston Rockets. Vísir/AP
James Harden fór mikinn þegar Houston hafði betur gegn Charltotte, 121-114, og vann þar með sinn níunda leik í röð. Harden skoraði 40 stig, tók fimmtán fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Annan leikinn í röð náði hann að skora 40 stig og vera um leið með þrefalda tvennu en það hafa aðeins fjórir leikmenn í sögunni afrekað. Þetta var hans ellefta þrefalda tvenna í vetur og tuttugasta á ferlinum. Russell Westbrook, leikmaður Oklahoma City Thunder, hefur náð sautján þreföldum tvennum í vetur en þessir tveir leikmenn eru í algjörum sérflokki í deildinni hvað þetta varðar. Houston var þó nærri búið að missa leikinn úr höndunum þegar liðið klikkaði á tíu skotum í röð í fjórða leikhluta. Mike D'Antoni, þjálfari liðsins, tók þá leikhlé og leikmenn hans réttu úr kútnum. Kemba Walker skoraði 25 stig fyrir Charlotte sem klikkaði á þremur þriggja stiga skotum á lokasekúndum leiksins. Toronto vann Boston, 114-106, þar sem DeMar DeRozen skoraði 41 stig sem er persónulegt met hjá honum á þessu tímabili. Boston hafði unnið fjóra leiki í röð áður en liðið mættir Toronto. NBA-meistararnir í Cleveland töpuðu óvænt fyrir Utah, 100-92. LeBron James var með 29 stig fyrir meistarana en Gordon Hayward 28 fyrir Utah.Úrslit næturinnar: Washington - Chicago 101-99 Toronto - Boston 114-106 Brooklyn - Atlanta 97-117 Houston - Charlotte 121-114 San Antonio - Milwaukee 107-109 Utah - Cleveland 100-97 LA Lakers - Portland 87-108 Golden State - Miami 107-95 Sacramento - Detroit 100-94
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira