Greining á lífsýni í algjörum forgangi nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 20. janúar 2017 21:56 Að sögn Gríms útiloka hinir grunuðu ekki samskipti við Birnu. vísir/anton brink
Yfirheyrslum á mönnunum tveimur sem grunaðir eru að hafa orðið Birnu Brjánsdóttur að bana er lokið í bili en þær hafa staðið yfir í allan dag. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, staðfesti í samtali við Vísi að sakborningarnir neiti enn sök. Aðspurður um hvort eitthvað benti til þess að játning væri á næsta leiti segir Grímur að ómögulegt væri að fara út í slíkt. „Svona rannsókn er einfaldlega þannig að hún þróast áfram með því að yfirheyra og fara yfir gögn. Svo er viðkomandi borið undir þá sem eru grunaðir. Rétt er að hafa í huga að mennirnir eru grunaðir en geta hugsanlega komið með skýringar á því sem borið er undir þá.“Einar Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi, hefur staðfest við fjölmiðla að ekki sé útilokað að mennirnir hafi haft samskipti við Birnu. Getur þú upplýst um hvort um samskipti í persónu eða í gegnum samfélagsmiðla sé að ræða?„Í yfirheyrslunum kemur fram að það hafa einhver samskipti hugsanlega átt sér stað án þess að það sé hægt að fara nánar út í það. Það er svolítið erfitt að setja á það einhvern merkimiða ef svo má segja. En það má segja að þeir útiloki ekki samskipti,“ segir Grímur.Nú er það staðfest að lífsýni sem fannst í Kia Rio bifreið sem mennirnir höfðu til umráða hafi meðal annars verið blóð. Þeir hafa væntanlega verið inntir eftir útskýringum á því, eða hvað?„Að sjálfsögðu. Það er meðal annars það sem við erum að fara yfir.“ Grímur segist hins vegar ekki geta svarað því hvað kom út úr því. „Við erum bara að vinna þetta, stundum tekur svolítinn tíma að fá skýringar.“Óyggjandi gögn um vitneskju og jafnvel aðkomu að hvarfi BirnuLífsýni sem grunur leikur á að sé úr Birnu hefur verið sent til Svíþjóðar til greiningar. Að sögn Gríms er rannsóknin í algjörum forgangi þar. Greiningin gæti þó tekið nokkra daga. Aðspurður um hvort hann telji að þörf sé á framlengingu gæsluvarðhalds sakborninganna vegna þess drjúga tíma sem greining á sýninu kann að taka segir Grímur að svo þurfi ekki endilega að vera. Hinir grunuðu voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í héraðsdómi í gær en lögreglan fór fram á fjórar vikur. „Það sem vakti fyrir okkur í embættinu þegar farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald. var einfaldlega að við erum með gögn sem við teljum nokkuð óyggjandi um vitneskju mannanna og jafnvel aðkomu þeirra að hvarfi Birnu. Þess vegna töldum við okkur þurfa þennan tíma.“ Hann segir að það sé ýmislegt sem geri það að verkum að þeir vilji svo langan tíma, meðal annars það að geta unnið úr gögnum og fengið greiningar á gögnum erlendis frá. „Það setur á okkur meiri pressu og við vinnum hraðar fyrir vikið. Ef við teljum okkur þurfa áframhaldandi gæsluvarðhald eftir að þetta tveggja vikna gæsluvarðhald rennur út, þá förum við fram á það við dómstóla.“ Grímur segir að þá myndi dómstóllinn meta málið upp á nýtt að fengnum þeim gögnum sem bæst hafa í málið. Lögreglan kærði úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar en niðurstaða hans í málinu liggur ekki enn fyrir. „Það breytir ekki okkar framgöngu en við pössum að vinna þetta hraðar.“Hér fyrir neðan má sjá frétt úr kvöldfréttum Stöðvar 2 um leitina að Birnu.
Birna Brjánsdóttir Tengdar fréttir Líklegast að Birna hafi farið upp í rauða bílinn á Laugavegi Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, segir lögregluna telja að hún hafi farið upp í rauða Kia Rio-bifreið við Laugaveg 31 aðfaranótt laugardags klukkan 05:25. 20. janúar 2017 08:49 Rannsóknargögn úr rauða Kia Rio-bílnum benda til misindisverks Gögn sem fundust við rannsókn á rauðri Kia Rio-bifreið sem lögregla haldlagði í Hlíðasmára í Kópavogi í hádeginu á þriðjudag í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur benda til þess að misindisverk hafi verið framið í bílnum. 19. janúar 2017 12:00 Lögregla lýsir eftir ökumanni hvítrar bifreiðar í tengslum við hvarf Birnu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni hvíta bílsins, sem var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24. 20. janúar 2017 16:16 Blóð fannst í Kia Rio bifreiðinni Einar Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi, staðfestir við fréttastofu að blóðsýni hafi fundist í bílnum og það hafi verið sent út til rannsóknar. 20. janúar 2017 19:21 Rauði bíllinn ekki á hafnarsvæðinu í um fjóra klukkutíma á laugardagsmorgun Lögregluna vantar upplýsingar um ferðir rauðu Kia Rio-bifreiðarinnar á milli klukkan 7 og 11:30. 20. janúar 2017 14:45 Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Fleiri fréttir Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Sjá meira
Líklegast að Birna hafi farið upp í rauða bílinn á Laugavegi Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, segir lögregluna telja að hún hafi farið upp í rauða Kia Rio-bifreið við Laugaveg 31 aðfaranótt laugardags klukkan 05:25. 20. janúar 2017 08:49
Rannsóknargögn úr rauða Kia Rio-bílnum benda til misindisverks Gögn sem fundust við rannsókn á rauðri Kia Rio-bifreið sem lögregla haldlagði í Hlíðasmára í Kópavogi í hádeginu á þriðjudag í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur benda til þess að misindisverk hafi verið framið í bílnum. 19. janúar 2017 12:00
Lögregla lýsir eftir ökumanni hvítrar bifreiðar í tengslum við hvarf Birnu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni hvíta bílsins, sem var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24. 20. janúar 2017 16:16
Blóð fannst í Kia Rio bifreiðinni Einar Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi, staðfestir við fréttastofu að blóðsýni hafi fundist í bílnum og það hafi verið sent út til rannsóknar. 20. janúar 2017 19:21
Rauði bíllinn ekki á hafnarsvæðinu í um fjóra klukkutíma á laugardagsmorgun Lögregluna vantar upplýsingar um ferðir rauðu Kia Rio-bifreiðarinnar á milli klukkan 7 og 11:30. 20. janúar 2017 14:45