Það sem kemur efnislega fram í kvörtun Hildar Kristínar er að hún sé afar ósátt við hljóðblöndunina á laginu eins og það birtist í sjónvarpsútsendingu.
„Fólk áttar sig kannski ekki á því af hverju frammistaða mín var svo kraftlaus. Ég bar hljóðblöndunina á laginu mínu saman við þau lög sem voru flutt síðar á undankvöldinu. Það var töluvert hærra í undirspilinu. Ég vil meina að það hafi haft áhrif á mína frammistöðu,“ segir Hildur.
Í gær var greint frá því að flytjendur lagsins Heim til þín væru einnig afar ósáttir við hljóðblöndunina á þeirra lagi. Sögðu þeir að hljóðblöndunin hefði verið þannig að það heyrðist hærra í öðrum af tveimur aðalsöngvurunum og þá heyrðist lítið sem ekkert í bakraddasöngvurunum. Líkt og Bammbaramm var Heim til þín ekki eitt af þeim þremur lögum sem komust áfram.
Hann sagði keppendur Söngvakeppninnar fá að koma með ábendingar um hljóðblöndun á æfingum fyrir keppnina og þá sé RÚV einnig með tónlistarstjóra sem sé öllum keppendum innan handar. Hann tók einnig fram að flestir keppendur séu með sérfræðinga með sér til að baktryggja að verið sé að uppfylla þær kröfur sem þeir gera.
Skrýtið að keppendur þurfi að standa vörð
Hildur Kristín var með einn slíkan, Loga Pedro Stefánsson. Hann mætti með henni á rennsli fyrir keppnina síðastliðið laugardagskvöld og kom með fjölda ábendinga sem Hildur segir að ekki hafi verið farið eftir. Logi hafi ekki verið til taks um kvöldið þegar keppnina fór fram því hann var staddur á Akureyri.

Hún segist ekki hafa fengið skýringar á því hvers vegna var svo lágt í hennar undirspili. Hún segir stöðu sína erfiða því að hún vilji ekki að það lýti þannig út að hún sé að kenna einhverjum öðrum um að hafa ekki komist áfram.
„En ég held að þetta eigi klárlega hlut í því.“
Hildur segist hafa orðið stressuð fyrir keppnina þegar hún komst að því að hún yrði fyrst á svið því þá séu mestu líkurnar á því að hljóðið klikki. „Ég var búin að sjá fyrir að það yrði líklegt að það yrði hljóðvesen þá myndi ég lenda í því, og svo gerðist það. Í byrjun var hljóðneminn minn ekki inni. Það sem mér finnst skipta mestu málið að hljóðstyrkurinn á laginu var lítill sem gerði það að verkum að lagið var kraftlaust og allt öðruvísi en það á að vera,“ segir Hildur.
Var með tækniráðgjafa á lokakvöldinu fyrir tveimur árum
Hún tók þátt í Söngvakeppninni fyrir tveimur árum þar sem hún var hluti af rafdúettnum Sunday sem flutti lagið Fjaðrir, eða Feathers, sem komst í úrslit keppninnar.
„Þá var Logi Pedro úti í útsendingarbílnum á meðan ég var að syngja og þá vorum við með þessa gæðastjórnun sjálf. En mér finnst alveg galið að það þurfi alltaf einhver að gera það, að það sé ekki fagfólk hjá RÚV sem geti ekki komið þessu réttu til skila,“ segir Hildur.
Var bara allan tímann glatað
„Þegar ég horfði á upptöku á flutningi mínum í ár þá varð ég svolítið hissa á því að það lagaðist ekkert í laginu, það var bara allan tímann glatað. Þess vegna var leiðinlegt að bera saman hljóðgæðin í því og til dæmis lögunum sem voru síðust. Það var eins og það væri búið að hækka mikið í öllu enda hljómuðu þau lög betur og var flutningurinn betri fyrir vikið,“ segir Hildur.
Hún bendir á að hennar lagi hafi verið spáð áfram í úrslit af mörgum og þá hafi einnig laginu Heim til þín, með Júlí Heiðari og Þórdísi Birnu, verið spáð áfram. Bæði lögin komust hins vegar ekki áfram og flytjendur laganna afar ósáttir við hljóðblöndunina.
„Það ýtir smá undir að auðvitað spilar hljóðblöndunin inn í,“ segir Hildur.
Hún segist hafa fengið athugasemdir um að hún hafi verið óstyrk í söngnum. „Ef söngurinn er miklu hærri en undirspilið þá heyrast öll smáatriði betur,“ segir Hildur.

Hildur vonast til að kvörtun hennar leiði til þess að seinna undankvöldið næstkomandi laugardag verði betra þegar kemur að hljóðblönduninni. „Það er ósanngjarnt og leiðinlegt fyrir alla sem eyða svona mörgum vikum í undirbúning að svona klúðrist. Ég vil líka að RÚV heyri að ég sé ekki ánægð með þetta og það hafi sennilega komið niður á mér,“ segir Hildur.
„Ég get ekki farið fram á neitt“
Tólf lög voru valin inn í Söngvakeppnina ár. Þeim er skipt upp í tvennt og eru því sex lög flutt á hverju undankvöldi. Þrjú úr hverju undankvöldi komast áfram í úrslitin en sérstök dómnefnd, sem skipuð er af hálfu RÚV, hefur þó möguleika á að hleypa einu lagi til viðbótar áfram, telju hún það eiga sérstakt erindi í úrslit.
Hildur segist gera sér grein fyrir því að sá möguleiki sé enn til staðar fyrir hana, og komast þannig í úrslit, en segir að dómnefndin muni væntanlega ekki horfa til þess hvaða lag misfórst í útsendingu vegna slæmrar hljóðblöndunar.
„Ég get ekki farið fram á neitt þannig. Ég bara að segja mína sögu og vildi að RÚV heyrði mína hlið.“
Hún segist hafa fengið þau svör frá RÚV að haldinn hafi verið fundur þar innanhúss þar sem hljóðmálin voru sérstaklega rædd. „Mér skyldist á því sem ég heyrði að þau væru sammála mér og að þau skildu um hvað málið snerist og upplifðu líka að þetta hefði komið niður á minni frammistöðu,“ segir Hildur.
Útilokað að lögin verði endurflutt
Þegar Vísir ræddi við Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóra Sjónvarpsins, vegna hljóðblöndunarinnar í gær var hann spurður hvernig RÚV myndi bregðast við því ef flutningur lags í Söngvakeppninni færi algjörlega úrskeiðis sökum tæknibilunar. Hann sagði ekki útiloka að lagið yrði endurflutt en segir við Nútímann í dag að það eigi ekki við lögin Bammbaramm og Heim til þín.