Grátbiður um að eiginmaðurinn verði rekinn úr landsliðinu fyrir framhjáhald Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. mars 2017 13:00 Ástin búin. vísir
Eiginkona kínverska fótboltamannsins Jiang Zhipeng grátbiður um að hann verði rekinn úr kínverska landsliðinu sem og félagsliði sínu Guangzhou R&F fyrir langvarandi framhjáhald. Zhipeng spilaði víst ömurlega í leik á móti Íran í undankeppni HM 2018 á dögunum en hann gaf eina mark leiksins í 1-0 tapi með döprum skalla til baka á markvörðinn sinn. En það var svo eftir leikinn sem allt fór í hundana hjá Zhipeng. Eiginkona hans, Zhang Zhiyue, setti færslu á Weipo-síðu sína (kínversk örbloggsíða) þar sem hún opinberaði langverandi framhjáhald Zhipeng. Hann er búinn að sækja um skilnað frá eiginkonunni eftir að verða ástfanginn af viðhaldinu sem heitir Xiao Bing. „Ég studdi hann þegar hann var enn þá fátækur strákur og móðir mín kom fram við hann eins og sinn eigin son. Fjölskyldan mín hjálpaði okkur með einni milljón jenum þegar hann keypti sitt fyrsta hús í Sjanghæ. Við héldum ekki brúðkaupsveislu og sambandið var aldrei opinbert,“ segir Zhiyue á síðunni sinni. „Hann var að sofa hjá öðrum konum í þrjú og hálft ár af fjögurra ára löngu hjónabandi okkar og nú er hann að reyna að koma mér mér í gröfina eftir tíu ára samband.“ Eiginkonan birti einnig dónaleg skilaboð á milli Zhipeng og viðhaldsins í færslunni á Weipo-síðunni. Hún vill hvorki að hann fái að spila fyrir lið né land lengur. „Kæri hera Cai Zhenhua, forseti kínverska knattspyrnusambandsins, ég grátbið þig um að reka Zhipeng úr kínverska landsliðinu,“ segir hún. „Kæri herra Wang Yuping, framkvæmdastjóri knattspyrnusambandsins í Guangdong, ég bið þig um að reka Jiang Zhipeng úr Guangzhou R&F.“ „Kæri herra Zhang Li, forseti Guangzhou R&F FC, ég bið þig um starfa með lögfræðingi mínum og leggja til samning Jiang Zhipeng sem sönnunargagn fyrir rétti. Ég trúi að réttlætinu verði fullnægt,“ segir Zhang Zhiyue.
Fótbolti Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Gjóðarnir unnu Super Bowl sannfærandi Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Fleiri fréttir Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tómas hetjan á dramatískan hátt í Edinborgarslagnum Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Stórsér á Jóni Degi eftir fyrstu dagana í Brann Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sagðir hafa gefið Ronaldo loforð Tómas kom inn á og AGF sneri leiknum sér í vil Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé Jóhann Berg án félags: „Spenntur fyrir næstu áskorun“ Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt Vill verða Bond illmenni Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Góðar fréttir af Alberti Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Hópurinn gegn Mexíkó: Gylfi snýr aftur í landsliðið „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ „Ég elska að skora mörk“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Real Madrid fylgir Barcelona eftir eins og skugginn Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Sjá meira