Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Aron Guðmundsson skrifar 9. febrúar 2026 21:10 Frá úrslitaleik Víkings Reykjavíkur og Vals í Reykjavíkurmótinu á dögunum. Víkingskonur fagna hér marki. Vísir/Óskar Ófeigur Víkingur Reykjavík hóf vegferð sína í Lengjubikar kvenna í fótbolta á öruggum 7-0 sigri í leik gegn Fram á Víkingsvelli í kvöld. Freyja Stefánsdóttir skoraði þrennu fyrir heimakonur.
Þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu og segja mætti að Víkingskonur hafi gert út um leikinn snemma í fyrri hálfleik. Elísa Birta Káradóttir kom þeim á bragðið með fyrsta marki leiksins á fjórðu mínútu og rétt um fimm mínútum síðar var Freyja Stefánsdóttir búin að tvöfalda forystu Víkings með öðru marki leiksins. Freyja bætti svo við öðru marki sínu og þriðja marki Víkings á sautjándu mínútu. Staðan orðin 3-0 og róðurinn þungur fyrir Framara. Bergdís Sveinsdóttir bætti við fjórða marki Víkinga á 25.mínútu og stóðu leikar 4-0 í hálfleik. Víkingskonur bættu við þremur mörkum í seinni hálfleik. Freyja fullkomnaði þrennu sína á 51.mínútu með fimmta marki Víkings og sitt hvort markið frá Jóhönnu Elínu Halldórsdóttur sem og Bergþóru Sól Ásmundsdóttur innsigluðu 7-0 sigur Víkings Reykjavíkur. Frábær byrjun á Lengjubikarnum hjá Víkingi Reykjavík. Liðið er, líkt og ÍBV og Valur, með þrjú stig eftir fyrstu umferðina.
Lengjubikar kvenna Víkingur Reykjavík Fram Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira