Baðst afsökunar á heimskulegustu spurningu ársins Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. mars 2017 13:30 Henkle í sjónvarpsþætti í Chicago í gær.
Blaðamaðurinn Derek Henkle var í heimsfréttunum í gær eftir að hafa spurt Bastian Schweinsteiger að svo heimskulegri spurningu að hún var sýnd út um allan heim. Bandaríska liðið Chicago Fire var þá að kynna Schweinsteiger sem nýjan leikmann liðsins og Henkle spurði að því hvort hann gæti hjálpað Fire að vinna heimsmeistarakeppnina. Eðlilega skildi enginn hvað blessaður maðurinn var að fara með þessari ruglspurningu. Hann ákvað því að umorða spurninguna en spurði aftur að því sama. Sjá einnig: Ævintýralega vandræðaleg spurning á blaðamannafundi Schweinsteiger | Myndband Henkle reyndi að rétta sinn hlut í gær. Baðst afsökunar, gerði tilraun til þess að snúa út úr en viðurkennir svo að vita í raun ekki mikið um fótbolta. „Ég biðst afsökunar ef ég hef móðgað einhvern. Ég veit að ég talaði um vitlausa keppni. Ég þakka Bastian fyrir að taka fagmannlega á málinu,“ sagði Henkle. „Spurningin mín var skot fram hjá og ég veit nú að ég verð að kynna mér knattspyrnuna betur.“ Henkle mætti í sjónvarpsþátt í Chicago í gær til þess að biðjast afsökunar en búið er að gera stólpagrin að blessuðum manninum út um allan heim.My apologies to soccer fans! pic.twitter.com/ODbmxS0qMf— Derek Henkle (@derekhenkle) March 31, 2017 When you're a reporter and have a tough day at the office! https://t.co/RnqqlzZwbB— Derek Henkle (@derekhenkle) March 30, 2017
Fótbolti Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Gjóðarnir unnu Super Bowl sannfærandi Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Fleiri fréttir Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tómas hetjan á dramatískan hátt í Edinborgarslagnum Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Stórsér á Jóni Degi eftir fyrstu dagana í Brann Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sagðir hafa gefið Ronaldo loforð Tómas kom inn á og AGF sneri leiknum sér í vil Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé Jóhann Berg án félags: „Spenntur fyrir næstu áskorun“ Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt Vill verða Bond illmenni Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Góðar fréttir af Alberti Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Hópurinn gegn Mexíkó: Gylfi snýr aftur í landsliðið „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ „Ég elska að skora mörk“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Real Madrid fylgir Barcelona eftir eins og skugginn Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Sjá meira