Alexandra með þrennu í sigri á móti Portúgal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2017 16:53 Alexandra Jóhannsdóttir var á skotskónum í dag. Vísir/Getty
Alexandra Jóhannsdóttir, fyrirliði íslenska sautján ára landsliðsins í fótbolta, skoraði þrjú mörk þegar íslenska liðið vann 4-1 sigur á Portúgal í dag í lokaleik sínum í milliriðli undankeppni EM. Íslensku stelpurnar tryggðu sér með því annað sætið í riðlinum en það dugar þeim þó ekki til að komast í úrslitakeppnina í Tékklandi. Spánn vann riðilinn og aðeins eitt lið í öðru sæti komst áfram. Íslensku stelpurnar töpuðu 3-0 á móti Spáni og þau úrslit komu í veg fyrir að íslenska liðið væri með bestan árangur af liðunum sem enduðu í öðru sæti í sínum riðli. Þýskaland var það lið sem komst áfram með bestan árangur í öðru sæti en England vann riðil þýska liðsins. Íslenska liðið lenti undir á 28. mínútu og var 1-0 undir í hálfleik. Þannig var staðan þar til að Alexandra Jóhannsdóttir jafnaði á 59. mínútu. Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jónsdóttir kom Íslandi yfir sjö mínútum síðar og í framhaldinu bætti Alexandra við tveimur mörkum á 67. og 73. mínútu. Alexandra Jóhannsdóttir samdi á ný við Hauka á dögunum en þessi stórefnilega knattspyrnukona ætlar að taka slaginn með nýliðunum í Pepsi-deild kvenna í sumar. Hún hefur nú skorað 10 mörk fyrir íslenska 17 ára landsliðið og er sú áttunda sem nær því.íslenska 17 ára landsliðið í fótbolta.Vísir/Getty
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira