Spá um storm ætlar að ganga eftir Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 17. apríl 2017 09:31 Vindaspá klukkan 18 í dag. Skjáskot/Veðurstofa
Spá um storm og hríðarveður á fjallvegum virðist ætla að ganga eftir í öllum meginatriðum samkvæmt veðurfræðingi hjá Vegagerðinni. Stormurinn byrjar vestan- og suðvestanlands með snjókomu á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum um og fyrir hádegi. Efst á Hellisheiði og Mosfellsheiði verður snjóbylur með 16-20 m/s frá því um kl. 12 til 14 en hlánar þar undir kvöld. Hviðurveður í SA-áttinni undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi, 30-35 m/s þegar líður á morguninn en allt að 40-45 m/s frá því um hádegi og nær hámarki síðdegis. Á Steingrímsfjarðarheiði, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Þverárfjalli og Öxnadalsheiði versnar veður með skafrenningi og ofankomu, einkum upp úr kl. 15 til 16. Þá verður einnig blint með köflum á Möðrudalsöræfum þegar líður á daginn. Þá er óveður á Kjalarnesi og Grindavíkurvegi. Vegir eru nær greiðfærir á Suðurlandi en byrjað er að élja. Á Vesturlandi er víðast autt en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Vetrarfærð er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en víðast greiðfært á láglendi. Snjóþekja er á Hrafnseyrarheiði en þæfingsfærð á Dynjandisheiði. Snjóþekja og hálka er á veginum norður í Árneshrepp. Víðast er autt á Norðurlandi en þó hálka eða hálkublettir á fáeinum köflum, aðallega á útvegum. Á Austurlandi er á köflum hálka eða hálkublettir. Þungfært er á Vatnsskarði eystra og Breiðdalsheiði. Ófært er á Öxi og í Vattarnesskriðum.
Veður Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Fleiri fréttir Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Sjá meira