Hiti í höfuðborginni þegar Washington minnkaði muninn | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2017 07:19 Dómararnir höfðu nóg að gera í leik Washington og Boston. vísir/getty
Þrír leikmenn voru reknir út úr húsi þegar Washington Wizards bar sigurorð af Boston Celtics, 116-89, í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Staðan í einvíginu er 2-1, Boston í vil. Það var mikill hiti í mönnum í höfuðborginni í nótt og alls voru átta tæknivillur dæmdar í leiknum. Þá voru Washington-mennirnir Kelly Oubre Jr. og Brandon Jennings og Terry Rozier hjá Boston reknir út úr húsi. John Wall var atkvæðamestur í liði Washington með 24 stig og átta stoðsendingar. Hann var eini leikmaðurinn á vellinum sem skoraði yfir 20 stig í leiknum. Al Horford var stigahæstur í liði Boston með 16 stig en skotnýting liðsins var aðeins 35,1%. Golden State Warriors er komið í 2-0 gegn Utah Jazz í undanúrslitum Vesturdeildarinnar eftir 115-104 sigur á heimavelli sínum í nótt. Kevin Durant skoraði 25 stig, tók 11 fráköst og gaf sjö stoðsendingar fyrir Golden State sem er enn ósigrað í úrslitakeppninni. Stephen Curry skoraði 23 stig og gaf sjö stoðsendingar og Draymond Green skoraði 21 stig, tók sjö fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum. Gordon Hayward skoraði 33 stig fyrir Utah og Rudy Gobert var með 16 stig og 16 fráköst.
NBA Mest lesið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Enski boltinn Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Golf Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Fótbolti Orri Steinn fram úr Eiði Smára Fótbolti Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Íslenski boltinn „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ Fótbolti „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Körfubolti „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ Körfubolti Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára Sjá meira