Maður sem spáir alltaf vitlaust spáir Golden State sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2017 23:30 Stephen A. Smith spáir Steph Curry og félögum sigri en eru það svo góðar fréttir. Vísir/Getty
Það eru flestir að spá Golden State Warriors sigri á Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar en það er þó spá eins manns sem fær stuðningsmenn Cavs til að brosa. Stephen A. Smith er einn helsti íþróttakjaftaskurinn í bandarísku sjónvarpi og hann leggur það í vana sinn að spá fyrir um hvaða lið vinnur lokaúrslit NBA-deildarinnar. Það hefur gengið óhemju illa hjá Stephen A. Smith að spá fyrir um sigurvegara reyndar svo illa að menn eru nánast farnir að reikna með því að það lið sem Smith spáir sigri muni tapa í úrslitaeinviginu. Undanfarin sex ár hefur það lið sem Stephen A. Smith spáir sigri í lokaúrslitunum nefnilega tapað. Bandarískir fjölmiðlar hafa að sjálfsögðu bent á þetta í aðdraganda lokaúrslitanna. Stephen A. Smith hefur nú sett inn spána en segir að Golden Sate Warriros muni vinna í ár eftir sjö leiki.Will Stephen A. Smith get it right this year?https://t.co/CoqCBOj5vkpic.twitter.com/RaK2QNxvch — SB Nation (@SBNation) May 30, 2017For the past 6 years (since 2011), Stephen A. Smith has not correctly predicted a NBA finals winner. pic.twitter.com/LxSQ08vw14 — TotalProSports (@TotalProSports) May 26, 2017 Stephen A. Smith er mikill LeBron James maður og í nýjustu spánni sinni bendir margt til þess að hann sé nú farinn að reyna að „jinxa“ sjálfan sig með það markmið að hans maður standi uppi sem sigurvegari. Það er því spurning hvort að spáin hans sé „sönn“ en það kemur víst aldrei í ljós. Lokaúrslit Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers hefst klukkan eitt eftir miðnætti annað kvöld og verða að sjálfsögðu öll sýnd beint á Stöð 2 Sport.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira