Góð upphitun fyrir kvöldið að horfa á stuttmynd um þriðja leik úrslitanna í NBA | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2017 20:00 Stephen Curry reynir að skora körfu í síðasta leik. Vísir/Getty
Golden State Warriors getur orðið NBA-meistari í körfubolta í nótt þegar liðið mætir Cleveland Cavaliers í Quicken Loans Arena í Cleveland í beinni á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti og þar er að duga eða drepast fyrir meistarana í Cleveland Cavaliers sem eru missa titilinn frá sér tapi liðið í kvöld. Golden State Warriors vann fyrstu tvo leikina á heimavelli sínum með samtals 41 stigs mun og náði síðan að fylgja því eftir með því að vinna þriðja leikinn sem var æsispennandi og skemmtilegur. Golden State Warriors vann á endanum 118-113 eftir að hafa unnið síðustu þrjár mínútur leiksins 11-0. Kevin Durant skoraði sjö stig á lokakaflanum og Stephen Curry fjögur. NBA-deildin hefur tekið saman skemmtilegt stuttmynd um þriðja leikinn sem má sjá hér fyrir neðan. Það er góð upphitun fyrir kvöldið að rifja upp stórskemmtilegan leik á miðvikudagskvöldið. Golden State Warriors hefur unnið alla fimmtán leiki sína í úrslitakeppninni til þessa og getur með sigri í kvöld orðið fyrsta liðið til að klára 16-0. Liðið hefur þegar bætt metið yfir flesta sigurleiki í röð í úrslitakeppni. Cleveland Cavaliers lenti 3-1 undir í fyrra en kom þá öllum á óvörum með því að vinna þrjá síðustu leikina og tryggja sér titilinn. Það þarf enn stærra kraftaverk að vinna sig út úr þessum vandræðum en fyrsta skrefið er að sjá til þess að Golden State Warriors tryggi sér ekki titilinn á þeirra heimavelli.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira