Hóta að taka repúblikana af spenanum þar til þeir ná málum í gegn Kjartan Kjartansson skrifar 27. júní 2017 16:38 Koch-bræðurnir og afskipti þeirra af stjórnmálum eru umdeild vestanhafs. Vísir/AFP
Þingmenn repúblikana hafa verið varaðir við því að þeir fái ekki lengur aðgang að fjármunum frá Koch-bræðrunum auðugu þar til þeir koma nýjum sjúkratryggingalögum og breytingum á skattkerfinu í gegnum Bandaríkjaþing. Bræðurnir Charles og David Koch eru á meðal ríkustu manna heims. Þeir hafa verið gríðarlega mikilvægir fjárhagslegir bakhjarlar Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum undanfarin ár. Styðja þeir frambjóðendur sem þeir telja að muni framfylgja pólitískum hugsjónum þeirra sem felst meðal ananrs í skattalækkunum og afregluvæðingu.The Guardian segir hins vegar að Koch-bræðurnir hafi komið þeim skilaboðum til repúblikana að þeir séu langeygir eftir árangri á ráðstefnu bakhjarla og þingmanna repúblikana um helgina. Blaðið hefur eftir Doug Deason, einum bakhjarlanna frá Texas að „sparibaukurinn frá Dallas“ sé nú lokaður þangað til repúblikanar komi frumvörpum í gegnum þingið.Óttast að tíminn renni út fyrir kosningarnar á næsta áriÞrátt fyrir að þeir hafi meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings hefur gengið erfiðlega fyrir repúblikana að samþykkja ný sjúkratryggingalög til að koma í staðinn fyrir lögin sem Barack Obama, fyrrverandi forseti, kom á og hafa verið kennd við hann. Frumvörp sem repúblikanar hafa lagt fram hafa reynst afar óvinsæl á meðal almennings. Forystu flokksins hefur heldur ekki auðnast að semja frumvarp sem hugnast bæði hófsömum repúblikönum og þeim sem vilja ganga enn lengra í að takmarka aðkomu alríkisstjórnarinnar að sjúkratryggingum. Koch-bræður styðja síðarnefnda hópinn.Á meðal þess sem Koch-bræður hafa fjármagnað er afneitun á loftslagsvandanum.Vísir/AFPÞá eru Koch-bræður og bakhjarlar í pólitísku þrýstineti þeirra sagðir ósáttir við að meiriháttar breytingar á sköttum hafi enn ekki orðið að veruleika.Sjá einnig:Heilbrigðisfrumvarp repúblikana á gjörgæslu Telja þeir skamman tíma til stefnu fyrir þingkosningarnar sem fara fram á næsta ári. Þá verður kosið um öll sæti í fulltrúadeildinni og þriðjung sæta í öldungadeildinni. Þrátt fyrir það segja starfsmenn þrýstihóps Koch-bræðranna að þeir hafi 300 til 400 milljónir dollara úr að spila í kosningabaráttunni sem er framundan.
Bandaríkin Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira