17 ára piltur skallaði lögreglumann Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júní 2017 07:23 Það kom ýmislegt inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Eyþór
Rétt fyrir klukkan tvö í nótt var lögreglan kölluð út í heimahús í Kópavogi en þar var 17 ára piltur í annarlegu ástandi og réðist illa við hann. Pilturinn var handtekinn af lögreglu en tókst þó að skalla lögreglumann áður en hann var settur í handjárn. Lögreglumaðurinn fór á slysadeild en pilturinn var vistaður í fangageymslu lögreglu og verður yfirheyrður síðar. Um klukkan hálfeitt var síðan tilkynnt frá öryggisfyrirtæki að þjófavörn væri í gangi á veitingastað í Vesturbænum. Sofandi maður var þar innandyra en búið að loka staðnum. Lögregla fór á vettvang og tókst að vekja manninn eftir þó nokkurn tíma sem brást illa við og hótaði að ráðast á lögreglumennina. Maðurinn var því handjárnaður og fluttur á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Þar var reynt að ræða við hann og eftir talsverðan tíma fór málið að skýrast. Kom í ljós að á veitingastaðnum hafði verið starfsmannapartý en maðurinn hefði orðið eftir til að ganga frá. Hann hefði sett þjófavarnakerfið á en svo sofnaði. Þegar hann róaðist ók lögreglan honum heim. Upp úr klukkan hálftvö fengu svo lögreglumenn sem voru í radarmælingum í Ártúnsbrekku útkall um að ekið hefði verið á kött í Austurbænum, en kötturinn var sagður lifandi. Stuttu síðar mældu þeir hraða jeppabifreiðar sem var ekið austur Miklubraut vel yfir hámarkshraða og gáfu ökumanninum merki um að stöðva. Hann gerði það, kom hlaupandi að lögreglubílnum og sagðist vera að flýta sér á dýraspítalann í Mosfellsbæ með köttinn sem ekið hafði verið á og lögreglumenn voru að fara sinna. Ökumanninum var veitt tiltal vegna akstursins en er ekki er vitað hvernig kisu reiddi af.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira