Enn eldast grunnskólakennarar Jakob Bjarnar skrifar 28. júlí 2017 14:38 Meðalaldur grunnskólakennara hækkar og hækkar. mynd/gettys
Haustið 2000 var meðalaldur starfsfólks við kennslu 42,2 ár en var 46,8 ár haustið 2016. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar en þar segir að meðalaldur starfsfólks við kennslu í grunnskólum hefur farið hækkandi frá árinu 2000. „Á þessu tímabili hefur meðalaldur kvenkennara hækkað meira eða úr 41,8 árum í 46,9 ár. Meðalaldur karlkennara hefur hækkað úr 43,6 árum í 46,3 ár. Meðalaldur starfsfólks við kennslu án réttinda er töluvert lægri en réttindakennara og hefur svo verið á öllu tímabilinu. Haustið 2016 var meðalaldur kennara með kennsluréttindi 47,3 ár en meðalaldur kennara án kennsluréttinda 38,8 ár.“Á þessu línuriti Hagsstofunnar má sjá þróun þegar litið er til aldursskiptingar grunnskólakennara.Meðfylgjandi mynd sýnir aldurskiptingu starfsfólks við kennslu. Kennurum undir þrítugu fækkar. Hins vegar fjölgar kennurum sem eru 50 ára og eldri úr 24 prósentum haustið 1998 í rúm 41 prósent haustið 2016. Á sama tíma fjölgaði svo kennurum sem eru 60 ár og eldri úr tæpum 6 prósentum í rúm 14 prósent haustið 2016. Þá greinir Hagstofan jafnframt frá því að kennarar án kennsluréttinda voru tæp 6 prósent starfsfólks við kennslu haustið 2016. „Á árunum 1998-2008 var hlutfall starfsfólks við kennslu í grunnskólum landsins, sem var án kennsluréttinda, á bilinu 13-20%. Hlutfallið lækkaði eftir hrun um allt land og fór lægst í 4,1% haustið 2012. Síðan 2012 hefur kennurum án kennsluréttinda fjölgað ár frá ári og voru 5,6% haustið 2016. Þá voru 272 starfsmenn við kennslu án kennsluréttinda og hafði fjölgað um 11 frá árinu áður.“
Mest lesið Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Innlent Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Innlent Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Innlent Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Innlent Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Erlent „Hvað er að lögreglunni?“ Innlent Fleiri fréttir Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Nýr sendiherra Bretlands í fullu námi í íslensku Páskarnir líta þokkalega út þrátt fyrir kulda Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Sjá meira