Jordan setur Kobe ofar en LeBron: Fimm toppar þrjá Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2017 23:30 Kobe Bryant og LeBron James áttust margoft við á körfuboltavellinum. vísir/getty
Michael Jordan telur að Kobe Bryant eigi heima ofar á listanum yfir bestu leikmenn allra tíma en LeBron James. Að mati Jordans liggur munurinn á Kobe og LeBron í fjölda titla sem þeir hafa unnið. „Nei, fimm toppar þrjá,“ svaraði Jordan þegar hann var spurður að því í körfuboltabúðum sem hélt í Santa Barbara í Kaliforníu hvort honum fyndist LeBron vera betri en Kobe. Jordan vísaði þarna til meistaratitla sem Kobe og LeBron hafa unnið.Jordan varð sex sinnum NBA-meistari með Chicago Bulls á sínum tíma.vísir/gettyKobe varð fimm sinnum NBA-meistari með Los Angeles Lakers á löngum og farsælum ferli sem lauk í fyrra. Hann varð meistari þrisvar sinnum í röð á árunum 2000-02 og bætti svo tveimur titlum við 2009 og 2010. Kobe fór alls sjö sinnum í úrslit með Lakers en tapaði aðeins tvisvar sinnum. LeBron hefur hins vegar unnið þrjá titla á sínum ferli. Hann varð meistari með Miami Heat 2012 og 2013 og með Cleveland Cavaliers 2016. LeBron hefur komist í úrslit NBA-deildarinnar sjö ár í röð og átta sinnum alls. Lið hans hafa hins vegar tapað fimm af þessum átta úrslitarimmum. „Hann gæti verið betri en það en Kobe vann fimm meistaratitla en LeBron þrjá,“ sagði Jordan sem varð sjálfur sex sinnum meistari með Chicago Bulls. Fyrst þrisvar í röð á árunum 1991-93 og tók svo aðra titlaþrennu 1996-98.
NBA Tengdar fréttir Jordan: Myndi vinna LaVar Ball þótt ég væri einfættur Michael Jordan segir að hann myndi vinna LaVar Ball í körfubolta, jafnvel þótt hann væri einfættur. 2. ágúst 2017 13:00 Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira
Jordan: Myndi vinna LaVar Ball þótt ég væri einfættur Michael Jordan segir að hann myndi vinna LaVar Ball í körfubolta, jafnvel þótt hann væri einfættur. 2. ágúst 2017 13:00