Fótbolti

Haukur Heiðar og félagar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Heiðar og félagar eru aðeins einu stigi frá Evrópusæti.
Haukur Heiðar og félagar eru aðeins einu stigi frá Evrópusæti. vísir/getty
Haukur Heiðar Hauksson var í byrjunarliði AIK sem vann öruggan 4-1 sigur á Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

AIK hafði mikla yfirburði og var komið í 4-0 í hálfleik. Haukur Heiðar fór af velli á 58. mínútu.

AIK er í 4. sæti deildarinnar og í hörkubaráttu um Evrópusæti.

Höskuldur Gunnlaugsson spilaði allan leikinn fyrir Halmstad sem er í fimmtánda og næstneðsta sæti deildarinnar með 13 stig, níu stigum frá öruggu sæti þegar sjö umferðir eru eftir.

Tryggvi Hrafn Haraldsson lék síðustu 13 mínúturnar í liði Halmstad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×