Ósætti við auglýsingabann Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. október 2017 06:00 Jack Dorsey, forstjóri Twitter. vísir/EPA
Samfélagsmiðillinn Twitter tilkynnti í gær um blátt bann við auglýsingum rússnesku fréttamiðlanna RT og Sputnik á síðu sinni. „Ákvörðunin var tekin á grundvelli þeirrar endurskoðunar sem við höfum ráðist í eftir forsetakosningar síðasta árs og vegna niðurstöðu bandarískra leyniþjónusta að bæði RT og Sputnik hafi á vegum rússneskra yfirvalda reynt að trufla kosningarnar,“ sagði í tilkynningunni. Sputnik hafði ekki tjáð sig um ákvörðunina í gær en á vefsíðu RT birtist grein þar sem sagði að miðillinn hefði aldrei brotið auglýsingareglur Twitter og þaðan af síður dreift röngum upplýsingum vísvitandi. Til stendur að fulltrúar Twitter mæti fyrir upplýsingamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í næstu viku ásamt fulltrúum Facebook og Google til að ræða hvernig Rússar notuðu miðla fyrirtækjanna til að dreifa áróðri fyrir forsetakosningarnar. Fyrr í mánuðinum sagði varaformaður nefndarinnar, Mark Warner, að fyrsta viðtalið við fulltrúa Twitter hefði valdið sér vonbrigðum og ekki verið fullnægjandi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira