Íslenski boltinn

Birnir sá um FH-inga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birnir Snær í baráttunni í leik gegn FH í sumar.
Birnir Snær í baráttunni í leik gegn FH í sumar. vísir/eyþór
Birnir Snær Ingason skoraði eina mark leiksins þegar Fjölnir lagði FH að velli í Bose-mótinu í Egilshöll í kvöld.

FH-ingar, undir stjórn Ólafs Kristjánssonar, hafa því tapað báðum leikjum sínum í Soundtouch-riðlinum en Hafnfirðingar töpuðu fyrir Stjörnunni í fyrri leiknum, einnig 1-0.

Fjölnir og Stjarnan munu því mætast í hreinum úrslitaleik riðilsins þann 4. desember en sigurvegari þess leiks fer í úrslitaleik mótsins, gegn sigurvegara SoundSport-riðilsins.

Birnir Snær skoraði markið á 27. mínútu og var um glæsilegt langskot að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×