Spilað á meðan HM stendur og bikarúrslitaleikurinn færður Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. nóvember 2017 11:15 Valur er ríkjandi Íslandsmeistari í Pepsi-deild karla. vísir/anton brink
Á fundi KSÍ með formönnum og framkvæmdastjórum félaga hér á landi tilkynnti Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, hugmyndir mótanefndar að leikdögum í Pepsi-deild karla sem og bikarkeppni karla næsta sumar. Þátttaka Íslands á HM í Rússlandi mun hugsanlega hafa minni áhrif á Pepsi-deild karla en EM í Frakklandi gerði sumarið 2016, en þá var að mestu gert hlé á deildinni á meðan þátttöku Íslands í keppninni stóð ytra. Birkir sagði í samtali við Vísi í morgun að stefnt væri að því að draga úr leikjamagni á meðan HM í Rússlandi stendur en þó ekki gert hlé á deildinni. Hins vegar verði það þannig að þau lið sem spila í Evrópukeppnum félagsliða - Valur, Stjarnan, FH og ÍBV - verði stillt upp í töfluröðinni þannig að þau spili innbyrðis einn leik á meðan riðlakeppni HM í Rússlandi stendur. Með því fá þau betra svigrúm til að einbeita sér að Evrópuleikjum sínum þegar að þeim kemur. Þá liggur fyrir að færa verður bikarúrslitaleik karla aftur í september en það er gert vegna breyting á leikjadagatali í áðurnefndum Evrópukeppnum. Ekkert hlé er lengur á henni í ágúst sem hefur þessar afleiðingar. Sem stendur er gert ráð fyrir bikarúrslitaleikurinn verði 15. september, eða til vara þann 6. október.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings