Óður til tölvuleikjanna og aðvörun á sama tíma Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. nóvember 2017 10:45 "Við fylgjumst með þróun sambands sem er hjartað í sýningunni, þessi stóra vináttu-og ástarsaga,“ segir Tryggvi. Vísir/Ernir
SOL er falleg ástarsaga um tvo týnda einstaklinga sem finna hvor annan en lifa lífi sínu að miklu leyti í tölvunni, í netleikjum, á samfélagsmiðlum og spjallrásum,“ segir Tryggvi Gunnarsson, leikstjóri verksins SOL, sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói annað kvöld. Tryggvi er líka höfundur SOL ásamt Hilmi Jenssyni. Hann segir verkið fjalla bæði um stöðu fólks í raunveruleikanum og sýndarheiminum. „Við Hilmir erum miklir aðdáendur tölvuleikja og höfum alist upp með þeim. Báðir höfum við fundið fyrir því að ef við pössum okkur ekki getur það orðið að fíkn. Best er að bera þetta saman við áfengi eða góðan mat, hluti sem skapa lífsgæði og yndislegar stundir ef rétt er farið með þá, en ef maður missir stjórn á neyslunni skapar það vandamál. Sama er með tölvuleikina.“ Sýningin er því bæði óður til tölvuleikjanna og möguleikanna í þeim og á sama tíma stúdía á hættunum sem felast þar, að sögn Tryggva. „En það er sönn saga sem við erum að nota,“ tekur hann fram. „Hún er um félaga okkar sem í leikritinu nefnist Davíð. Um 25 ára aldurinn leið honum frekar illa og leitaði á náðir tölvuleikjanna. Fíknin var dálítið að skemma fyrir honum en endaði svo mögulega á því að bjarga lífi hans því hann kynntist spilaranum SOL og þau urðu nánir vinir. Við fylgjumst með þróun þeirra sambands sem er hjartað í sýningunni, þessi stóra vináttu- og ástarsaga. Auðvitað dramatíserum við hlutina aðeins til að þeir passi betur á sviði en í grunninn er það saga úr íslenskum samtíma sem við byggjum á.“ Tryggvi er ein aðalsprautan í Sóma þjóðar, sjálfstæðum leikhópi sem að sýningunni stendur. Hann segir það ákveðið grettistak að koma tölvuheiminum til skila og fá gamlan búnað leikhússins til að virka eins og hópurinn vill. „Við þurfum að nota leikhústrixin til að skilja á milli þess hvenær fólk er að tjatta saman á spjallrás, hvenær það er að hringja hvort í annað, hvenær það er í sama herbergi og hvenær það er að spila tölvuleik nettengt. Það er höfuðverkur leikstjórans að sýna þessi mismunandi stig samskipta. Svo erum við með sýndarveruleika í verkinu, þar sem við sjáum Davíð og SOL í rauninni vera að spila.“ Það er sem sagt dálítið fjölþætt sem leikhópurinn er að gera, eins og Tryggvi lýsir. „Við erum að kanna eðli tilfinninga. Hvort einhver munur sé á að upplifa þær í gegnum tölvuna eða úti í hinu daglega lífi. Tölvurnar eru orðnar svo fullkomnar og leikirnir stórir og flottir,“ segir Tryggvi og bendir á að þeir sem fæddir eru 1975 og síðar hafi alist upp við tölvuleiki. Leikirnir þróist með fólkinu því tækninni fleygi fram og sýndarheimarnir verði raunverulegri. „Rannsóknir sýna að góður árangur í tölvuleik hefur sömu lífeðlisfræðilegu áhrif á heilann og að ná áfanga í raunveruleikanum. Því upplifir fólk þær tilfinningar sem raunverulegar,“ segir hann og bætir við: „Kannski skilja þeir eldri ekki hvað er spennandi við svona sýndarlíf en við í Sóma þjóðar lifum í von um að við sköpum einhvern skilning á því í gegnum SOL. Náum að sýna hvert aðdráttaraflið er og hvenær þörf er að stíga til baka.“
Menning Mest lesið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun „Enginn skömm af því að leita sér hjálpar“ Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Lífið Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr Lífið Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Lífið Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Lífið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira