Geir: Ágúst Elí hefur svarað kallinu vel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2017 16:48 Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari. vísir/eyþór
Geir Sveinsson tilkynnti fremur óvænt í dag landsliðshóp sinn fyrir EM í Króatíu sem fer fram í janúar. Sextán manna leikmannahópur var tilkynntur, þar af tveir markverðir. Tveir stórmótsnýliðar eru í hópnum, markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson úr FH og Ýmir Örn Gíslason úr Val. Innkoma Ágústar Elís vekur einna mest athygli en eftir sitja heima þeir Hreiðar Levý Guðmundsson og Aron Rafn Eðvarðsson sem báðir eiga fjölda stórmóta að baki. „Það er mikil reynsla í markvarðateyminu. Björgvin og Aron Rafn hafa einokað þessa stöðu síðustu árin. En síðan að ég tók við hefur þróunin verið sú að ég hef viljað fjölga landsliðsmönnum - búa til fleiri landsliðsmenn,“ sagði Geir í samtali við íþróttadeild í dag. „Ágúst Elí hefur svarað kallinu mjög vel finnst mér. Þó svo að hann hafi aðeins spilað þrjá landsleiki undir minni stjórn þá hefur hann spilað þá alla mjög vel. Hann hefur þar að auki staðið sig vel í þýðingarmiklum leikjum með FH - leikjum í Evrópukeppnum og annað og eins og staðan er í dag þá er hann traustsins verður.“ Geir útilokar ekki að taka sautjánda manninn með liðinu á mótið og að sá maður verði markvörður. Aron Rafn og Hreiðar Levý eru báðir í 28 manna hópi Geirs sem tilkynntur var fyrr í mánuðinum. Aðeins leikmenn sem eru þar á lista eiga möguleika á að spila með íslenska landsliðinu á EM í Króatíu.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira