Menning

Ný verðlaun í íslenskri myndlist

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Málverk eftir Jón Axel.
Málverk eftir Jón Axel. Fréttablaðið/Pjetur
Íslensku myndlistarverðlaunin verða í fyrsta skipti afhent í febrúar næstkomandi. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar á vefnum myndlistarsjodur.is.

Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum: Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun ársins.

Það er Myndlistarráð sem stendur að verðlaununum. Þau hafa þann tilgang að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar á Íslandi og er ætlað að stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og styðja við myndsköpun þeirra.

Aðalverðlaunin, ein milljón króna, verða veitt íslenskum myndlistarmanni eða myndlistarmanni með búsetu á Íslandi sem þykir hafa skarað fram úr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á árinu 2017. Hvatningarverðlaunin, fimm hundruð þúsund krónur, verða veitt ungum starfandi myndlistarmanni sem lokið hefur grunnnámi á síðastliðnum fimm árum og sýnt opinberlega á þeim tíma.

Dómnefnd er skipuð til eins árs í senn og í henni sitja árið 2017 til 2018 þau Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir myndlistarmaður, fyrir hönd SÍM, Sigrún Hrólfsdóttir, deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Magnús Gestsson, formaður Listfræðafélags Íslands, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, fulltrúi safnstjóra íslenskra safna, og Margrét Kristín Sigurðardóttir, formaður Myndlistarráðs. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.