Katrínu Jakobsdóttur lýst sem „and-Trump“ Kjartan Kjartansson skrifar 20. desember 2017 18:21 Þrátt fyrir að Katrín sé sögð andstæðan við Donald Trump Bandaríkjaforseta er bent á að þau séu bæði lítt hrifin af NATO. vísir/ernir
Stefnan um kolefnishlutleysi Íslands, jafnrétti kynjanna og tuttugu ára gamalt tónlistarmynd með Bang Gang er á meðal umræðuefna í viðtali við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem birtist meðal annars á vefsíðu bandaríska dagblaðsins USA Today. Þar er henni lýst sem „and-Trump“, andstæðunni við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Í viðtalinu sem alþjóðlega fréttasíðan Public Radio International tók upphaflega en birtist meðal annars á vefsíðu USA Today er Katrín sögð sá stjórnmálamaður sem Íslendingar treysta best. Hún sé að meðal yngstu þjóðarleiðtoga heims, femínisti og umhverfisverndarsinni sem er með gráðu í bókmenntum og sérstakan áhuga á glæpasögum. Þá er rifjað upp að hún lék í tónlistarmyndbandi með hljómsveitinni Bang Gang á sínum tíma. „Hafðir þú gaman af myndbandinu? Þetta var frábær hljómsveit. Tveir vinir mínir báðu mig um að leika þetta hlutverk og það var aðallega að hlaupa um,“ segir forsætisráðherra spurður út í leiksigurinn í myndbandinu.Enn ljón í vegi kynjajafnréttis á ÍslandiÞá var Katrín spurð í í stjórnmálin á Íslandi og röð hneykslismála. Lýsir hún því að þrátt fyrir efnahagslegan bata í kjölfar hrunsins hafi reynst erfiðara að endurnýja traust á stjórnmálamönnum. „Ég held að stemmingin í íslenskum stjórnmálum sé þannig að fólk vonar að allir flokkar á þingi geti náð betri stjórnmálamenningu,“ segir hún. Þrátt fyrir að Katrín telji að Ísland standi sig vel í jafnrétti kynjanna á alþjóðlegan mælikvarða segir hún enn margar áskoranir til staðar. „Til dæmis eru færri konur á þingi eftir kosningarnar nú en eftir þær sem voru á undan og við höfum enn ekki náð því sem við gætum kallað jöfn laun kynjanna sem er eitthvað sem við höfum unnið að í mörg ár,“ segir forsætisráðherra.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira