Chelsea gæti verið á leið í bann Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. janúar 2018 13:30 Chelsea er ríkjandi Englandsmeistari vísir/getty
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur sakað Chelsea um að brjóta reglur varðandi kaup á leikmönnum undir 18 ára aldri eftir að hafa rannsakað félagsskipti félagsins. Í september tilkynnti FIFA að sambandið hyggðist hefja rannsókn á mögulegum brotum Chelsea á félagsskiptareglum varðandi unga leikmenn og nú hefur félagið verið ákært vegna kaupa á 25 leikmönnum undir 18 ára. Barcelona, Real Madrid og Atletico Madrid hafa öll verið dæmd fyrir slík brot og hlotið félagsskiptabann sem spannaði tvo félagsskiptaglugga. Slítk bann gæti verið yfirvofandi hjá Chelsea verði félagið fundið sekt. Athygli FIFA var vakin þegar Bertrand Traoré var keyptur til Chelsea þann 1. janúar 2014, fyrsta dag félagsskiptaglugga eftir 18 ára afmæli hans. Það eru hins vegar til myndir af Traoré að spila fyrir félagið í október 2011, þegar hann var 16 ára. Félög mega ekki festa kaup á erlendum leikmönnum undir 18 ára aldri nema foreldrar þeirra hafi sest að í landi félagsins án þess að það komi fótbolta við, eða að félagið og leikmaðurinn séu staðsett innan við 50 kílómetra frá landamærum. Eina undantekning þessara reglu er varðandi leikmenn á aldrinum 16-18 ára innan Evrópska efnahagssambandsins eða Evrópusambandsins. Kaupin á Traoré, sem kemur frá Burkina Faso, eru því ekki talin uppfylla nein af skilirðum undanþáganna. Félagið gaf frá sér tilkynningu þar sem það sagðist fara eftir öllum reglum FIFA þegar kemur að því að fá til sín leikmenn. FIFA hefur beðið Chelsea og enska knattspyrnusambandið um gögn varðandi þessa 25 leikmenn, og sú tala gæti hækkað komi fleiri mál upp í rannsóknunum. FIFA segir það ekki skipta máli hvort brotin séu 2 eða 50, þau séu oftast svo alvarleg að refsingin sé nærri alltaf bann, og þá helst yfir að minnsta kosti tvo félagsskiptaglugga því auðvelt sé að hagræða kaupum í kringum eins glugga bann. Barcelona var dæmt fyrir 31 brot, Real Madrid var upphaflega rannsakað á 70 brotum en eftir áfrýjun voru sakfelldir fyrir 37 og fengu bannið minnkað í bara einn glugga vegna þess að þeirra brot voru ekki eins alvarleg. Atletico var dæmt fyrir 153 brot.
Fótbolti Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Sjá meira