Dómari sparkaði í leikmann og gaf honum síðan rauða spjaldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2018 08:30 Tony Chapron rekur hér Diego Carlos útaf í gærkvöldi. Vísir/Getty
Mjög umdeilt atvik varð í leik Paris Saint-Germain og Nantes í frönsku deildinni í fótbolta í gærkvöldi en PSG vann þá 1-0 sigur á tíu mönnum Nantes. Það eru einmitt kringumstæðurnar í þessu umrædda rauða spjaldi sem hafa kallað á sterk viðbrögð, bæði hjá leikmönnum og þjálfurum Nantes en líka á samfélagsmiðlum. Dómarinn Tony Chapron virtist þá sparka til Brasilíumannsins Diego Carlos áður en hann lyfti rauða spjaldinu. Chapron gaf leikmanni Nantes þarna sitt annað gula spjald að því virist fyrir mótmæli. „Þessi dómari á að fara í sex mánaða bann,“ sagði Waldemar Kita, stjórnarformaður Nantes en bætti við: „Ég vil samt eiginlega ekki trúa því að hann hafi gert þetta viljandi,“ sagði Kita. Diego Carlos rakst óvart aftan í Tony Chapron dómara sem svaraði með að sparka til leikmannsins og gaf Brasilíumanninum síðan sitt annað gula spjald.VIDEO Pazzesco in #NantesPsg arbitro spinto cade, poi sgambetta e dà rosso a #DiegoCarloshttps://t.co/5HrHfpoUSppic.twitter.com/3XTAxvzVy3 — LaGazzettadelloSport (@Gazzetta_it) January 14, 2018 „Þetta er algjört grín. Ég fékk tuttugu skilaboð allstaðar af úr heiminum þar sem allir sögðu að þessi dómari væri brandari. Ef ég segi samt of mikið þá lendi ég fyrir siðanefndina. Við höfum nefnilega engan rétt til að tjá okkur,“ sagði Diego Carlos. Angel di Maria skoraði eina mark leiksins eftir tólf mínútna leik og sigurinn skilaði Paris Saint-Germain ellefu stiga forskoti á toppi deildarinnar. Nantes er 20 stigum neðar í fimmta sætinu.
Fótbolti Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Sjá meira