Þjálfarinn talaði ekki við Rúnar: „Ljóst frá fyrsta degi að ég þyrfti að fara“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2018 13:30 Rúnar Már fór á láni. vísir/getty
Rúnar Már S. Sigurjónsson, landsliðsmaður í fótbolta, fór frá svissneska stórliðinu Grasshopper til St. Gallen á láni á dögunum en hann varð að losna frá Grasshopper þar sem hann fékk ekkert að spila. Staða Rúnars breyttist snögglega þegar að þriðji þjálfarinn sem hann var með hjá liðinu var ráðinn í september en hann hafði lítil not fyrir Skagfirðinginn. Áður var Rúnar lykilmaður hjá Grasshopper. „Úr því hvernig staðan var orðin hjá Grasshopper var þetta lífsnauðsynlegt. Þegar ég horfði til næstu mánaða þurfti ég að fara að spila og fá traust og gleði. Þetta var eitthvað sem að ég þurfti að gera,“ segir Rúnar í viðtali við Akraborgina sem má heyra í heild sinni hér að neðan. „Þetta er svolítið skrítin staða. Ég kem þarna inn eftir EM í Frakklandi og er lykilmaður á fyrsta tímabilinu. Svo er sá þjálfari sem fékk mig rekinn í mars í fyrra og þá kemur annar þjálfari sem gaf mér enn þá stærra hlutverk og sett enn meiri ábyrgð á mig.“ Sá þjálfari var svo látinn fara í september á síðasta ári en þá var ráðinn Murat Yakin, fyrrverandi landsliðsmaður Sviss. „Ég var ekki í framtíðaráformum hans frá fyrsta degi,“ segir Rúnar. „Ég veit ekki hver ástæðan er fyrir því. Ég byrjaði að spila fyrstu leikina undir hans stjórn en var alltaf tekinn út af eftir 55-60 mínútur, sama hvort ég var búinn að skora, leggja upp eða vera besti maður vallarins.“ „Á endanum var ég kominn á bekkinn. Ég fann það alveg á æfingum að þetta myndi ekkert breytast því hann talaði ekkert við mig og ég talaði ekkert við hann. Við smullum ekki saman frá fyrsta degi þannig að ég þurfti að losna og hann vildi eflaust losna við mig. Þessi niðurstaða var fínt fyrir báða aðila,“ segir Rúnar Már Sigurjónsson.
Fótbolti Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Sjá meira