Stalst til að blása á kertin hjá afmælisstelpum landsliðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2018 10:00 Hallbera Guðný Gísladóttir á ekki afmæli fyrr en í september en var samt mætt til að blása á kertin hjá Berglindi og Söndru. Mynd/KSÍ
Hallbera Guðný Gísladóttir er leikreyndasti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í vináttulandsleiknum á móti Noregi sem fera á La Manga á Spáni í þessari viku. Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, getur ekki spilað leikinn á Spáni sem þýðir að enginn leikmaður hefur spilað fleiri landsleiki en Skagastelpan sem á að baki 90 A-landsleiki. Hallbera er kannski farin að hafa sig fullmikið frammi í hópnum ef marka má þessa mynd sem Knattspyrnusambandið birti á samfélagsmiðlum sínum. Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Sandra María Jessen áttu báðar afmæli 18. janúar síðastliðinn og héldu því upp á afmælið sitt í ferðinni. Forráðamenn íslenska landsliðsins redduðu að sjálfsögðu köku í tilefni afmælisins og stelpurnar fengu að blása á kertin. Berglind Björg og Sandra María spila báðar framarlega á vellinum og treysta á góða hjálp í flottum sendingum fram völlinn frá Hallberu en að þessu sinni var bakvörðurinn öflugi einnig farin að hjálpa þeim að blása á kertin eins og sést hér fyrir neðan.Tvö afmælisbörn í gær og í dag fengu þær svo sameiginlega afmælisköku eftir kvöldmatinn. Til hamingju með afmælið @berglindbjorg10 og @sandrajessen7 !@HallberaGisla stóðst ekki freistinguna og hjálpaði stelpunum að blása á öll tvö kertin... #fyririsland#dottirpic.twitter.com/xPFrR4et25 — Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 19, 2018 Leikur Íslands og Noregs fer fram annað kvöld og þá væri nú gaman ef Hallbera verði jafn hjálpsöm með góðum sendingum á sóknarmennina tvo eins og hún var að blása á kertin hjá þeim.
Fótbolti Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Sjá meira