Tengdadóttir Donalds Trump flutt á sjúkrahús eftir að hafa borist hvítt duft í pósti Birgir Olgeirsson skrifar 12. febrúar 2018 18:59 Vanessa Trump ásamt Donald Trump yngri Vísir/Getty
Vanessa Trump, tengdadóttir Donalds Trump forseta Bandaríkjanna, var flutt á sjúkrahús fyrr í dag eftir að hafa fengið hvítt duft í pósti. Lögreglan í New York greindi frá þessu í yfirlýsingu en þar segir að Vanessa hafi fundið fyrir ógleði eftir að hafa verið í nálægð við duftið. Komið hefur í ljós að duftið reyndist meinlaust. Vanessa er eiginkona Donald Trump yngri en á fréttaveita Reuters greinir frá málinu á vef sínum. Þar kemur fram að yfirvöld í Bandaríkjunum hafi verið á varðbergi vegna póstsendinga sem innihalda hvítt duft frá árinu 2001. Það ár voru send bréf á fjölmiðla og þingmenn sem innihéldu miltisbrand og létust fimm vegna þeirra voðaverka. Reuters segir pakkann hafa verið stílaðan á Donald Trump yngri en þrír af heimili þeirra hjóna á Manhattan voru fluttir á sjúkrahús vegna málsins. Donald Trump yngri er elsti sonur Donalds Trump en sá yngri rataði í sviðsljós fjölmiðla vegna funda sem hann átti með Rússum árið 2016 sem buðu framboði föður hans upplýsingar sem áttu að koma forsetaframboði Hillary Clinton illa. Árið 2016 var hvítt duft sent með pósti á heimili Eric Trump, einum af sonum Donalds Trump, en það reyndist meinlaust.Fréttin var síðast uppfærð klukkan 21:15
Donald Trump Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Sextán látin: Skotmennirnir feðgar Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Sextán látin: Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira