Ísland vann Dani í vítaspyrnukeppni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. mars 2018 20:23 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í baráttunni við Pernille Harder í fyrri leiknum við Dani Vísir/EPA
Hlín Eiríksdóttir gerði sitt fyrsta mark fyrir A-landslið Íslands þegar hún jafnaði leik Íslands og Danmerkur á Algarve mótinu í fótbolta sem fram fer í Portúgal. Ísland hafði betur eftir vítaspyrnukeppni og endaði því í níunda sæti mótsins. Íslensku stelpurnar áttu hættulegri færi í fyrri hálfleik þar sem fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir skallaði í stöngina og Katrín Ásbjörnsdóttir átti skot sem Stina Lykke Petersen þurfti að hafa sig alla við að verja, en liðin gengu markalaus til búningsherbergja. Hallbera Guðný Gísladóttir átti skot í þrverslánna beint úr hornspyrnu eftir um klukkutíma leik en aðeins þremur mínútum seinna kom Sanne Troelsgaard boltanum framhjá Sonný Láru Þráinsdóttur í íslenska markinu, gegn gangi leiksins. Það tók Hlín þó aðeins átta mínútur að jafna leikinn. Enn ein stórhættulega hornspyrnan frá Hallberu rataði á kollinn á Hlín á fjærstönginni sem skilaði boltanum í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og Íslendingar gera annað jafntefli sitt við silfurliðið frá EM 2017 á nokkrum dögum í venjulegum leiktíma. Knýja þurfti fram úrslit í leiknum með vítaspyrnukeppni sem Ísland vann. Ingibjörg Sigurðardóttir, Rakel Hönnudóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Agla María Albertsdóttir og Andrea Rán Hauksdóttir skoruðu úr spyrnunum fyrir Ísland. Sonný Lára Þráinsdóttir varði þriðju spyrnu Dana, slaka spyrnu Sofie Junge Pedersen, og tryggði Íslandi 5-6 sigur.
Fótbolti Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Liverpool - Newcastle | Harður slagur á Anfield Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Sjá meira