Löwen jók forystuna á toppnum Anton Ingi Leifsson skrifar 29. mars 2018 19:01 Guðjón Valur í leik með Ljónunum en hann skoraði níu í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen er nú með fjögurra stiga forskot á Füchse Berlín í þýsku úrvalsdeildinni eftir að Ljónin unnu þrettán marka sigur, 36-23, á Hüttenberg. Löwen voru í stuði í kvöld og leiddu með ellefu mörkum í hálfleik, 20-9. Þeir gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og unnu að lokum með þrettán mörkum og skoruðu 36 gegn 26 mörkum Hüttenberg. Ljónin eru á toppnum með 44 stig, fjórum stigum á undan Füchse. Hüttenberg er í bullandi fallbaráttu, með tíu stig í næst neðsta sæti, stigi fyrir ofan Friesenheim sem situr á botininum. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði níu mörk og Alexander Petersson þrjú. Füchse tapaði mikilvægum stigum er liðið gerði jafntefli, 24-24, við TVB 1898 Stuttgart. Stuttgart var fimm mörkum yfir í hléi, 17-12, en Berlínarliðið náði að snúa leiknum sér í vil. Það var svo fimm sekúndum fyrir leikslok sem Stuttgart jafnaði og 24-24 lokaniðurstaðan. Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Füchse sem er í öðru sætinu, með 40 stig, jafn mörg stig og Flensburg sem er sæti neðar. Alfreð Gíslason og lærisveinar í Kiel eru í sjötta sætinu með 37 stig eftir sex marka sigur, 29-23, á VfL Gummersbach á heimavelli. Marko Vujin og Steffen Weinhold gerðu fimm mörk hvor.
Handbolti Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn „Hörku barátta tveggja góðra liða“ Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Sjá meira