Vatnavextir og líkur á skriðuföllum Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. apríl 2018 07:39 Suðausturhornið má búast við vatnavöxtum í dag. VÍSIR/VILHELM
Það verður suðaustan strekkingur í dag, rigning og milt, en víða bjartviðri norðan heiða. Engu að síður eru gular viðvaranir í gildi fyrir Austur- og Suðausturland vegna úrhellis. Búast má við auknu rennsli í ám og lækjum á svæðinu, bæði vegna rigningar en ekki síst snjóbráðnunar. Að sögn Veðurstofunnar kann þetta jafnframt að auka líkurnar á skriðuföllum á suðausturhorni landsins. Það verður þó þurrt að kalla annars staðar á landinu og hitinn verður á bilinu 6 til 14 stig. Búast má við hægari vind á morgun, sumardaginn fyrsta, og dálítilli vætu öðru hverju á Suður- og Vesturlandi, annars þurrt að kalla og sæmilega hlýtt áfram. Litlar breytingar verða í veðrinu á föstudag, dálítil súld fyrir norðan og stöku skúrir syðra, en á laugardag fer væntanlega að rigna sunnan- og austanlands.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):Austan 3-8 m/s og víða bjartviðri N-lands, annars skýjað og sums staðar dálítil rigning á S-verðu landinu. Hiti 5 til 12 stig.Á föstudag:Hæg norðlæg eða breytileg átt. Súld með köflum norðan heiða, en stöku skúrir SV-lands. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á SA-landi.Á laugardag:Austlæg átt og fer að rigna, fyrst SA-lands, en þurrt fram á kvöld á N- og V-landi. Hiti 3 til 10 stig, mildast S- og SV-lands.Á sunnudag:Norðaustlæg átt og rigning, en úrkomulítið S- og V-lands. Hiti breytist lítið.Á mánudag:Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum S-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast á S-landi.Á þriðjudag:Austlæg átt, skýjað og dálítil væta á S-verðu landinu.
Veður Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Sjá meira