Segir 43 milljóna jólagjöf Dags freklegt inngrip í viðkvæman markað Jakob Bjarnar skrifar 4. maí 2018 11:43 Ari sér eitt og annað athugavert við það að Dagur kaupi miða af Kristínu Eysteinsdóttur í Borgarleikhúsinu fyrir 43 milljónir og gefi starfsmönnum borgarinnar.
Kærunefnd útboðsmála segir að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Reykjavíkurborg hafi verið heimilt að kaupa 18.300 leikhúsmiða af Borgarleikhúsinu og greiða fyrir það 43.462.500 milljónir króna og gefa starfsfólki borgarinnar. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri kærði málið til nefndarinnar á þeim forsendum að um væri að ræða frekleg inngrip í viðkvæman markað.Þjónustukaup en ekki miðar á markaði„Þegar um svona mikið magn af miðum er að ræða inná tiltölulega lítinn markað fannst mér eðlilegt að kanna hvort slík kaup væru ekki útboðsskyld,“ segir Ari í samtali við Vísi. „Og nú hefur kærunefndin komist að niðurstöðu um að svo sé ekki af því þetta falli undir Evróputilskipun um þjónustukaup og ég verð bara að una því. Og ég óska öllum til hamingju með að fá miða í Borgarleikhúsið þó ég hefði gjarnan viljað að skiptingin milli leikhúsa á þessari jólagjöf hefði verið jafnari milli leikhúsanna.“ Ari segir að sér hafi yfirsést þessi tæknilegi flötur málsins, að hægt væri að túlka þessi miðakaup sem þjónustukaup, en þar eru miklu hærri viðmið lögð til grundvallar, en ekki að um væri að ræða miða á markaði.Búið að uppfylla tiltekna þörfÍ niðurstöðunni kemur meðal annars fram að um talsvert mikil inngrip er að ræða; gróflega metið selur Þjóðleikhúsið um 90 þúsund miða á ársgrundvelli sem þýðir þá að 18.300 miðar til líklegra leikhúsgesta, markaður sem Þjóðleikhúsið er á, eru 20 prósent af heildarveltu hússins á ársgrundvelli. Þarna er búið að uppfylla ákveðna þörf. Þiggjendur gjafarinnar, starfsmenn Reykjavíkurborgar, hafa síður hvata og/eða þörf að kaupa miða í leikhús. Ari telur að þannig sé með óbeinum hætti verið að beina viðskiptum frá Þjóðleikhúsinu. Hann segist telja að eðlilegra hefði verið að reyna að dreifa þessari jólagjöf með miðakaupum til frjálsra leikhópa eða Þjóðleikhússins og þá jafnvel með útboði.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira