Ísland mætir Tékkum á morgun: „Þær stigu fram á við en við sátum eftir“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. maí 2018 20:00
Ísland mætir Tékkum í næst síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2018 í handbolta kvenna í Laugardalshöll annað kvöld. Lokaleikurinn er svo gegn Dönum ytra á laugardag. Ísland er í botnsæti riðilsins með eitt stig eftir jafntefli gegn Slóveníu í Laugardalshöll fyrr á árinu. Liðið tapaði fyrir Tékkum ytra í fyrsta leik riðilsins síðasta haust. „Ég tel okkur eiga 50/50 möguleika. Þetta lið er ekkert ósvipað Slóvenum, sem við mættum hérna heima og gerðum jafntefli við og ef við náum okkar besta leik er þetta lið sem við eigum að geta sigrað,“ sagði Axel Stefánsson, landsliðsþjálfari, við Arnar Björnsson á blaðamannafundi í dag. Þórey Rósa Stefánsdóttir, fyrirliði landsliðsins, tók undir það. „Spila okkar leik vel og þá eigum við betri leik heldur en síðast og þá eigum við ágætis möguleika að mínu mati.“ „Áður fyrr var þetta lið sem við miðuðum okkur svolítið við en svo tóku þær skref fram á við en við sátum eftir. Ég er mjög spennt að spila þennan leik og máta okkur aftur við þær,“ sagði Þórey Rósa. Efstu tvö lið hvers undanriðils fara á EM og bestu liðin í þriðja sæti. Þegar tvær umferðir eru eftir er Ísland eins og áður segir á botni riðilsins. Tvö stig eru upp í Tékkana í þriðja sætinu og Slóvenar eru í öðru sæti með fjögur stig.
Handbolti Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Ronaldo trúlofaður Fótbolti „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Enski boltinn Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Enski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Íslenski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sport Fleiri fréttir Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Sjá meira