Dæmd til dauða fyrir að drepa nauðgarann eiginmann sinn Jakob Bjarnar skrifar 25. maí 2018 10:13 Frá Súdan. Amnesty hvetur almenning til að skrifa undir áskorun til dómsmálaráðherra í Súdan, þess efnis að lífi Nouru verði þyrmt. ASHRAF SHAZLY / AFP
Amnesty International hefur sent út áskorun til almennings, hvatningu þess efnis að skrifa undir áskorun til dómsmálaráðherra Súdan, um að horfið verði frá því að fullnægja dauðadómi yfir hinni 19 ára gömlu Nouru Hussein. Hún var dæmd til dauða fyrir að drepa eiginmann sinn. Dómstólar í Súdan telja að Noura sé sek um morð af yfirlögðu ráði en Amnesty telur einsýnt að hún hafi drepið manninn í sjálfsvörn, þá er hann vildi nauðga henni. Erlendir miðlar hafa greint frá málinu, svo sem BBC, en í frásögn Amnesty kemur fram að Noura hafi aðeins verið 16 ára þá er hún var gefin manni gegn vilja sínum. Faðir hennar og eiginmaðurinn gerðu samning sín á milli og þegar Noura lauk grunnskóla í Apríl var henni gert að flytja inn til eiginmannsins. „Þegar nýi eiginmaður Nouru nauðgaði henni í fyrsta sinn fékk hann tvo bræður sína og frænda til að halda henni niðri á meðan hann kom vilja sínum fram. Þar sem Noura var ekki viljug til að „fullkomna hjónbandið með samræði“, enda lagðist hún gegn ráðahagnum allt frá upphafi, þvingaði eiginmaðurinn hana til þess. Morguninn eftir gerði hann aðra tilraun til að nauðga henni en Nouru tókst að flýja inn í eldhús þar sem hún greip hníf. Í kjölfar ryskinga þeirra á milli hlaut eiginmaðurinn banvæna hnífsstungu. Strax í kjölfarið leitaði Noura til fjölskyldu sinnar en faðir hennar afhenti hana lögregluyfirvöldum og í framhaldinu snéri öll fjölskyldan baki við henni,“ segir í frétt og áskorun Amnesty.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira