Real Madrid gæti fengið 24 tíma glugga til að kaupa Mbappé Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. ágúst 2018 08:30 Heimsmeistarinn gæti þurft að fara frá PSG. vísir/getty
Real Madrid er ekki búið að gefast upp á því að kaupa Kylian Mbappé frá Paris Saint-Germain til að fylla í ofurstjörnuskarðið sem Cristiano Ronaldo skildi eftir sig. Spænski risinn tók óvænt 88 milljóna punda tilboði Juventus í Cristiano Ronaldo en er ekki búið að finna aðra stjörnu til að fylla í skarðið. Gareth Bale hefur gert sitt besta í byrjun tímabils. Maðurinn sem að Florentino Pérez, forseti Real Madrid, vill fá er franska ungstirnið Kylian Mbappé sem hefur slegið í gegn undanfarin misseri og var útnefndur besti ungi leikmaður HM í sumar er hann fagnaði heimsmeistaratitlinum með franska landsliðinu.¡Buenos días! Mbappé to Real Madrid could happen before deadline day. Today's front cover of AS pic.twitter.com/qRYOWA98D1 — AS English (@English_AS) August 23, 2018 Paris Saint-German hefur engan áhuga á að selja Mbappé en gæti neyðst til að gera það ef það finnst sekt um að brjóta fjármálareglur FIFA. Sé það raunin fær Real Madrid 24 klukkustunda glugga á lokadegi félagaskipta til að kaupa Frakkann en AS greinir frá. PSG fór framhjá Financial Play-lögunum með því að fá Mbappé á tveggja ára láni frá Monaco en það þarf nú að reiða fram 160 milljónir punda til að ganga frá kaupum á leikmanninum. Það þarf félagið að gera fyrir mánudaginn í næstu viku. Ef PSG ákveður að láta reyna á þetta mun UEFA hafa þrjá daga til að fara yfir pappírana. Ef svo fer að PSG megi ekki kaupa Frakkann unga verður það að losa hann á lokadegi félagaskipta og þá ætlar Real Madrid að mæta af fullum krafti, að því fram kemur í fréttaskýringu AS um málið.
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Fleiri fréttir Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Sjá meira