Rúnar fann lausnina þegar hann setti Watson á bekkinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2018 14:45 Albert Watson í leik með KR í sumar. Fréttablaðið/Ernir
KR hefur haldið hreinu í öllum fjórum leikjunum þar sem Albert Watson hefur ekki fengið að spila í Pepsi-deildinni í sumar. Norður-Írinn Albert Watson sat á bekknum hjá KR um helgina þegar liðið sótti þrjú stig norður til Akureyrar og kannski ekki af ástæðulausu. KR-liðið hefur haldið fjórum sinnum hreinu í síðustu fimm leikjum sínum og þessi fjórir leikir eiga það sameiginlegt að Albert Watson spilaði ekki. Albert Watson kom til KR til að binda saman varnarleik liðsins en þjálfarinn Rúnar Kristinsson fann hins vegar lausnina þegar hann setti Albert Watson á bekkinn. Það sýnir tölfræðin í það minnsta. Tveir leikmenn eiga það sameiginlegt að hafa komið inn í KR-liðið fyrir síðustu leiki en það eru þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson. Báðir komu inn í liðið fyrir þessa fimm leikja törn. Gunnar Þór Gunnarsson hafði aðeins verið einu sinni í byrjunarliðinu í fyrstu tólf leikjunum og Arnór Sveinn bara tvisvar. Þeir höfðu aldrei byrjað báðir fyrr en í leiknum á móti Stjörnunni þar sem KR hélt hreinu og vann 1-0. Síðan að þeir Gunnar Þór og Arnór Sveinn komu inn í byrjunarliðið hefur KR-liðið aðeins fengið á sig eitt mark á 450 mínútum. Það mark kom í leik á móti Breiðabliki og í eina leiknum sem Albert Watson hefur spilað frá 17. júlí.KR-vörnin með Albert Watson í Pepsi-deildinni 2018: 13 leikir 16 mörk fengin á sig 2 leikir haldið hreinu 73 mínútur á milli marka fenginna á sig 44 prósent stiga í húsi (17 af 39)KR-vörnin án Albert Watson í Pepsi-deildinni 2018: 4 leikir 0 mörk fengin á sig 4 leikir haldið hreinu 360+ mínútur á milli marka fenginna á sig 83 prósent stiga í húsi (10 af 12)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira