Allir vinir í eftirpartíinu Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 16. september 2018 14:00 Gabríella Sif Beck leiðir Roller Derby liðið Ragnarök. frettablaðið/anton brink „
Ég var ekkert í íþróttum og sá mig ekki fyrir mér fara inn á þá braut. Það var samfélagið í kringum þetta sem heillaði mig til að byrja með. Svo uppgötvaði ég hvað sportið er klikkaðslega skemmtilegt,“ segir Gabríella Sif Beck, fyrirliði Roller Derby liðsins Ragnaraka. Fjölbreytileikinn hafi höfðað til hennar. „Roller Derby er svo opið samfélag. Það eru allir velkomnir og þarna blómstra margir sem hafa aldrei fundið sig í neinni annarri íþrótt. Fólk er á öllum aldri og til dæmis margir sem byrja um fertugt og verða geggjað góðir. Þetta er einnig mjög hinseginvænt samfélag. Það skiptir engu máli hvers kyns fólk er, kynhneigð þess eða kynvitund. Svo eru líka allar líkamstýpur velkomnar. Þetta finnst mér gera Roller Derby sérstakt, þó ég vilji ekki gera lítið úr öðrum íþróttum. En Roller Derby er langt frá því að vera einsleitt.“Ást á rúlluskautum „Ég þekkti engan í þessu þegar ég fór á fyrstu æfinguna fyrir einu og hálfu ári. Sá bara auglýsingu um nýliðanámskeið og dró vinkonu mína með, þorði ekki að mæta ein. Svo fann ég mig algerlega í þessu, fór beint í stjórn og hef leikið alla leikina síðan ég byrjaði og er núna fyrirliði. Ég kynntist líka unnustu minni í Derbyinu, hún hefur verið í liðinu en er komin út í dómgæsluna núna, þetta er forboðin ást,“ segir Gabríella hlæjandi. Það komist ekki mörg önnur áhugamál að sem ekki snúist um hjólaskauta. „Ég hef verið með annað hjóla skautaverkefni í gangi í sumar, Chicks in Bowls. Það er í grunninn eins og hjólabrettaliðið er að gera, skeita á römpum en á hjólaskautum. Ég lærði aldrei á hjólabretti. Við erum nokkrar stelpur sem hittumst til að skeita og æfum ný trikk. Ég er reyndar á keramiknámskeiði núna og búin að búa til eina skál, eða kannski er þetta öskubakki. Keramikið er kannski ekki mín sterka hlið en það er gaman að læra eitthvað nýtt,“ segir Gabríella. Hún spilar einnig á bassa í frístundum og æfir öðru hvoru með vinum sínum en vill ekki kannast við að þau séu hljómsveit. Á sumrin gengur hún á fjöll og á veturna stundar hún nám í ferðamálafræði í HÍ og starfar hjá What’s On við upplýsingagjöf til ferðamanna.700 Egilsstaðir Í Gabríellu leynist landsbyggðartaug en fyrstu ár ævinnar bjó hún á Reyðarfirði. „Ég er að austan og fjölskyldan býr þar. En ég hef samt búið í Reykjavík nánast allt mitt líf, flutti suður 4 ára en fór alltaf á sumrin til afa og ömmu á Reyðarfirði. Ég hef sterk tengsl þangað og fer oft austur. Númerið mitt í Roller Derby er til dæmis 700, póstnúmerið á Egilsstöðum,“ segir hún og heldur áfram að tala um uppáhaldsáhugamálið. „Á Íslandi er Roller Derby ekki stórt sport, hér er bara eitt lið en við verðum reyndar með nýliðanámskeið í næstu viku í Kaplakrika. Yfirleitt koma lið hingað til lands að keppa en við höfum farið út og keppt á alþjóðlegum mótum og í febrúar á þessu ári kepptum við sem landslið á heimsmeistaramóti. Það var stór áfangi fyrir okkur. Þá sáum við hvað Roller Derby samfélagið er stórt á heimsvísu en það eru yfir tvö þúsund Roller Derby deildir út um allan. Það er til dæmis Roller Derby lið í Egyptalandi. Bandaríkin eru stærst enda er íþróttin upprunnin í Texas,“ segir Gabríella. Það er einmitt grjóthart lið frá Texas sem keppir við Ragnarök á morgun, Honky Tonk Heartbreakers. „Þær eru gamlar í hettunni,“ segir Gabríella en það þurfi ekki að þýða að þær verði auðveldari andstæðingar, það sé ekki sjálfgefið að leikharkan minnki með hækkandi aldri leikmanna. „Við kepptum til dæmis einu sinni á móti kanadísku liði, vil ekki kalla þær ellismelli en konur í eldri kantinum. Það var einn erfiðasti leikur sem ég hef spilað! Þær voru ótrúlega skemmtilegt lið,“ segir Gabríella. „Þetta er mikil kontaktíþrótt og nauðsynlegt að vera með hjálm og hlífar til að slasa sig ekki. En það eru auðvitað reglur eins og í öllum íþróttum. Keppnin fer fram á sporöskjulaga braut og í hvoru liði eru 5 liðsmenn inná í einu, fjórir þeirra eru varnarmenn og einn er „jammer“ eða hlaupari. Hlauparinn skorar stig, með því að fara fram hjá andstæðingunum í hinu liðinu. Það er hraði og harka í leiknum og miklar tæknifléttur. En svo eru allir vinir í eftirpartíinu.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Lífið Terence Stamp látinn Bíó og sjónvarp „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Lífið Breyta merki Eurovision Tíska og hönnun Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið Annie Mist á von á þriðja barninu Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Fleiri fréttir Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Annie Mist á von á þriðja barninu Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Sjá meira