Skýrslan var kynnt í Incheon í Suður-Kóreu í dag en vísindanefndin telur að rétt rúmur áratugur er til stefnu áður en markmið ríkja heims um að halda hlýnun jarðar undir 1.5 gráðum sé úr myndinni. Bjartsýnustu birtingarmyndir skýrslunnar gera ráð fyrir því að hlýnun jarðar muni valda verri þurrkum, flóðum og hitabylgjum með tilheyrandi afleiðingum fyrir hundruði milljóna manna.
Í skýrslunni segir að enn sé gluggi til að bregðast við en slíkar aðgerðir þurfi að vera umfangsmeiri en áður hefur verið gert ráð fyrir og muni kosta um 2.5 prósent af vergri heimsframleiðslu.

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir að Ísland þurfi að leggja sitt af mörkum í þessum efnum.
„Horfurnar hér á Íslandi eru mjög erfiðar sérstaklega vegna súrnun sjávar,“ segir Árni. „Súrnun sjávar fylgir aukinni losun af koltvísýringi. Koltvísýringurinn binst í hafinu og hafið súrnar og það hefur neikvæð áhrif fyrir lífríkið.“
Hann segir að ýmislegt sé hægt að gera hér á landi til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og ýmislegt gott hafi komið fram í loftslagsáætlun ríkisstjórnarinnar en umhverfisráðherra hefur sagt að áætlunin verði endurnýjuð strax á næsta ári.
„Það þurfa til dæmis að eiga sér stað orkuskipti í samgöngum. Dísil og bensín þurfa að fara út og rafmagn eða metan inn,“ segir Árni. „Svo ættum við að styrkja almenningssamgöngur í meira mæli. Það er einn stóri pósturinn að minnka losun í samgöngum.“
Að mati Árna vantar þætti í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar sem snúa að samningi við Evrópusambandið um sameiginlega ábyrgð sambandsins, Noregs og Íslands hvað samdrátt í losun varðar.