Menning

Róleg lög í öndvegi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Guðrún Gunnarsdóttir.
Guðrún Gunnarsdóttir. fréttablaðið/eyþór
Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona, gefur út plötu í dag sem nefnist Eilífa tungl. Hún segir róleg og falleg lög einkenna hana.

„Söngljóð eru sett í fyrirrúm,“ segir hún og kveðst hafa fundið falleg ljóð sem hana langaði að syngja.

„Ég hafði samband við Aðalstein Ásberg Sigurðsson og hann bjó til lög við þrjú ljóð, svo fann ég fleiri í sama anda.“

Um er að ræða íslensk lög og ljóð og fáein valin erlend lög með nýjum íslenskum textum.

Níu ár eru frá því síðasta sólóplata Guðrúnar kom út. Hún verður með útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi á miðvikudaginn 24. október klukkan 20. Þar verður flutt efni af nýju plötunni og fleiri valin lög sem margir kannast við.

Með Guðrúnu verður einvala lið: Gunnar Gunnarsson, píanó og hljómborð, Ásgeir Ásgeirsson, gítar, Þorgrímur Jónsson, kontrabassi, Þórdís Gerður Jónsdóttir selló, Hannes Friðbjarnarson trommur og slagverk og Sönghópurinn við Tjörnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.