Geipilegt klámgláp sýkti jarðfræðistofnun Bandaríkjanna Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. október 2018 14:27 Talið er að starfsmaðurinn hafi sótt um 9000 klámsíður í vinnunni. Getty/schyther5
Klámneysla starfsmanns bandarísku jarðfræðistofnunarinnar kom ekki aðeins í bakið á honum, heldur vinnustaðnum öllum. Rannsókn þarlendra eftirlitsaðila leiddi nefnilega í ljós að með klámglápi sínu hafi starfsmanninum tekist að sýkja tölvukerfi stofnunarinnar með skæðum tölvuvírusum. Starfsmaðurinn, sem hvorki er kyn- né nafngreindur í bandarískum miðlum, er sagður ítrekað hafa sótt klámsíður í vinnunni á síðustu árum. Eftirlitið áætlar að síðurnar telji um 9000 og að á meðal þeirra séu síður sem eru gjörsamlega þjakaðar af hvers kyns tölvuóværum. Einni þessara síðna hafi tekist að lauma vírus í tölvu starfsmannsins sem svo dreifðist út um allt tölvukerfi jarðfræðistofnunarinnar. Umræddur tölvuormur er sagður hannaður til þessa að stela gögnum úr hýsli sínum. Þá er vírusinn jafnframt sagður „tengjast“ tölvuárásum, án þess að það sé útskýrt nánar á vef TechCrunch.Rannsókn eftirlitsins leiddi einnig í ljós að starfsmaðurinn hafi vistað klámfengin gögn á USB-kubb, sem og í símann sinn. Því sé talið nokkuð ljóst að sími starfsmannsins hafi einnig sýkst af óværunni. Eftirlitið ráðleggur bandarísku jarðfræðistofnuninni að banna fjölda klámsíðna, auk þess sem það ráðleggur starfsmönnum stofnunarinnar að tengja hvorki síma sína né USB-kubba við vinnutölvurnar. Vírusinn kunni enn að valda óskunda.
Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira