Menning

Gísli Örn hleypur í skarðið í Elly

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ragnar Bjarnason, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson og Gísli Örn Garðarsson þegar hópurinn tók við gullplötu fyrir geilsadiskinn með tónlistinni úr sýningunni.
Ragnar Bjarnason, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson og Gísli Örn Garðarsson þegar hópurinn tók við gullplötu fyrir geilsadiskinn með tónlistinni úr sýningunni.
Gísli Örn Garðarsson mun fylla skarð Hjartar Jóhanns Jónssonar í leikritinu Elly í Borgarleikhúsinu frá og með fimmtudeginum 29. nóvember. Hjörtur er önnum kafinn í öðru verkefni leikhússins. Gísli Örn er vel kunnugur verkinu þar sem hann skrifaði það ásamt Ólafi Agli Egilssyni og leikstýrði því.

Gísli tekur að sér nokkur hlutverk og mun hann m.a. leika Eyþór Þorláksson og Svavar Gests, en þessir menn voru eiginmenn Ellyjar, - sá fyrsti og sá þriðji. Hjörtur þarf frí frá sýningunni í desember þar sem hann mun leika Ríkharð III í samnefndu leikriti Shakespeares sem verður jólasýning Borgarleikhússins.

Fyrsta sýning Gísla verður fimmtudaginn 29. nóvember og mun hann leika í sýningunni út árið. Þetta er í fyrsta skipti í nokkur ár sem hann stígur á svið á Íslandi. Að undanförnu hefur hann mestmegnis leikstýrt verkum í leikhúsi og leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum bæði hérlendis og erlendis að því er segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.

Sýningin um Elly Vilhjálms var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í mars árið 2017 og hefur síðan þá verið sýnd rúmlega 160 sinnum sem gerir hana að vinsælustu íslensku sýningu allra tíma. Áhorfendur eru orðnir rúmlega 75 þúsund og virðist ekkert lát vera á vinsældum.


Tengdar fréttir

Beið á Kastrup með blómvönd en hún kom aldrei

Höfundar og leikarar sýningarinnar um Ellý þurftu að grafa djúpt í einkalíf söngkonunnar ástsælu til að gera lífshlaupi hennar góð skil á sviðinu. Verkið hefur notið fádæma vinsælda og verið sýnt 160 sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.