Atkvæðagreiðslan um Brexit fer fram samkvæmt áætlun Kjartan Kjartansson skrifar 9. desember 2018 13:45 Öll spjót standa nú á May forsætisráðherra. Greidd verða atkvæði um útgöngusamning hennar á þriðjudag að óbreyttu. Vísir/EPA
Brexit-ráðherra Bretlands segir að atkvæðagreiðslu um útgöngusamning Theresu May forsætisráðherra í þinginu verðir ekki frestað. Sumir þingmenn og ráðherrar hvetja May til að reyna að herja hagstæðari samning út úr Evrópusambandinu. Breska dagblaðið Sunday Times hélt því fram í dag að May ætlaði sér að fresta atkvæðagreiðslunni og halda til Brussel til að semja upp á nýtt við Evrópusambandið. Útlit er fyrir að sá samningur sem nú liggur fyrir verði kolfelldur í þinginu. „Atkvæðagreiðslan mun fara fram og það er vegna þess að þetta er góður samningur og eini samningurinn,“ segir Stephen Barclay, ráðherra Brexit-mála. Hann telur að jafnvel þó að samningurinn verði felldur í þinginu geti May áfram setið sem forsætisráðherra. Í sama streng tekur Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra sem sagði af sér vegna Brexit fyrr á þessu ári. Hann telur þó að May þurfi að semja upp á nýtt við Evrópusambandið, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Johnson var einn af helstu talsmönnum þess að Bretar segðu sig úr Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslunni árið 2016.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira