Skoðun

Skattablæti Samfylkingarinnar

Einar Freyr Bergsson skrifar
Í Hafnarfirði er gott að búa, þótt það hafi ekki alltaf verið svo. Þá vísa ég til þess að Samfylkingin fór með stjórn bæjarins, ein eða í samstarfi við vinstri græn, allt frá árinu 2002. Stjórn þessar flokka tókst ekki betur en svo að frá árinu 2012 var bærinn okkar undir sérstöku eftirliti eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaganna, en það tók okkur fimm ár að komast úr þeirri stöðu sem fyrri meirihluti kom bænum í. Ég held að mikilvægt sé að gleyma þessu ekki.

Ég er því ánægður með að sitjandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og óháðra ætlar að halda álagningarprósentu útsvars bæjarins óbreyttri þótt mér sem frjálshyggjumanni hefði þótt betra að sjá hana lækka. Vonandi gerist það á komandi árum undir stjórn núverandi meirihluta.

Stefán Már Gunnlaugsson hélt jómfrúrræðu sína á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn miðvikudag og óska ég honum til hamingju með það þann áfanga. Ég er honum hins vegar algerlega ósammála um mikilvægi þess að hækka álagsprósentuna og að án slíkrar hækkunar muni misskipting samfélagsins aukast.

Flokksbróðir hans, Friðþjófur Helgi Karlsson, tók undir með honum og sagði að mikilvægt væri að koma til móts við þá sem minna mega sín í samfélaginu. Ég get verið sammála honum um að allir eigi rétt á jöfnum tækifærum, en þó ekki jöfnuði. Þeir tala báðir um að með því að hækka útsvar upp í hæstu mögulegu prósentu myndu þeir ná aukalega 200 krónum af meðallaunamanni á mánuði. Út af fyrir sig eru 200 krónur ekki mikill peningur og nægir eflaust ekki fyrir kaffibolla, en margt smátt gerir eitt stórt. Í ljósi þess að Hafnarfjörður stendur sig vel fjárhagslega er engin raunveruleg ástæða til þess að hækka útsvar.

En helsta áhugamál Samfylkingarinnar virðist vera að hækka skatta og aðrar álögur sem mest, ólíkt því sem núverandi meirihluti gerir. Skattar á einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki hér í bænum eru nú þegar of háir og ber okkur að lækka þá eins og kostur er.

Væri ekki frekar áhugaverðara að einkavæða grunn og leikskóla bæjarins, en það gæti skapað fjölbreyttara og betra skólakerfi og um leið minnkað útgjöld bæjarfélagsins.

Finnst mér því þessi ummæli Stefáns og Friðþjófs undarleg, talandi um að hjálpa fólki sem illa er statt fjárhagslega með því að kreista úr því jafnvel þann pening sem kæmi sér vel í lok mánaðar.

Höfundur er ungur Sjálfstæðismaður í Hafnarfirði




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×