Yfirlýsing vegna pistils forstjóra HSu Jóhann K. Jóhannsson skrifar 31. desember 2018 08:08 Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar bendir á að í upphaflegu viðtali við Herdísi og í yfirlýsingu stofnunarinnar kemur meðal annars fram að fækka eigi stöðugildum sjúkraflutningamanna á næsta ári og að álag sé sívaxandi. Vísir/Vilhelm
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofunnar Suðurlands, segir í yfirlýsingu á vef stofnunarinnar í gærkvöldi að fyrirsögn á frétt Vísis um fækkun sjúkraflutningamanna á Suðurlandi sé villandi og ósönn. Í fyrirsögninni segir að fækka eigi sjúkraflutningamönnum á svæðinu þrátt fyrir fleiri alvarleg slys. Í yfirlýsingunni segir Herdís: „Það er mikill ábyrgðarhluti hjá fréttamanni að dreifa vísvitandi villandi fréttum af raunverulegri stöðu sjúkraflutninga á Suðurlandi og sá með því tortryggni. Hafa skal það sem sannara reynist.“ Yfirlýsingin er birt fyrir hönd framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Í henni segir að sjúkraflutningamönnum hafi fjölgað frá 2015 úr 17,2 stöðugildum í 27,3 á þessu ári. Eftir breytingar á vaktafyrirkomulagi verði stöðugildin 24,1 þann 1. febrúar, 2019. „Fyrirsögn fréttarinnar er beinlínis ósönn og til þess eins gerð að valda íbúum óþarfa áhyggjum og kasta rýrð á fagleg og framúrskarandi vinnubrögð sjúkraflutningamanna á Suðurlandi sem starfa þar við afar erfiðar aðstæður og sívaxandi álag,“ segir í yfirlýsingunni. Yfirlýsingu Herdísar á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands má lesa hér.Frétt Stöðvar 2 og Vísis í gær má sjá og lesa hér.Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar bendir á að í upphaflegu viðtali við Herdísi og í yfirlýsingu stofnunarinnar kemur meðal annars fram að fækka eigi stöðugildum sjúkraflutningamanna á næsta ári og að álag sé sívaxandi. Fréttastofa stendur við fréttina og fyrirsögn hennar.
Fjölmiðlar Sjúkraflutningar Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira