Gary Martin í stað Patrick Pedersen hjá Íslandsmeisturunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2019 11:04 Gary Martin er á leiðinni til Vals. vísir/ernir
Gary Martin verður kynntur sem nýr leikmaður Vals í dag en Hlíðarendafélagið hefur boðað til blaðamannanfundar seinni partinn. Fótbolti.net hefur heimildir fyrir því að Íslandsmeistarar Vals munu á þessum blaðamannafundi einmitt kynna Gary Martin sem nýjan leikmann félagsins. Valsmenn ætla að kynna þrjá nýja leikmenn á fundinum en hinir eru væntanlega Garðar Gunnlaugsson og Kaj Leo í Bartalsstovu. Gary Martin mun þar með fylla í fótspor danska framherjans Patrick Pedersen, sem var markakóngur Pepsi deildar karla í fyrra með 17 mörk. Pedersen samdi við móldóvska liðið FC Sheriff í lok síðasta árs. Gary Martin og Patrick Pedersen eiga það sameiginlegt að hafa orðið markakóngar Pepsi deildarinnar, Martin sumarið 2014 en Pedersen 2015 og 2018. Tobias Thomsen hafði einnig yfirgefið Val en Valur er einnig búið að gera samning við Skagamanninn Garðar Gunnlaugsson. Garða hefur einnig orðið markakóngur Pepsi-deildarinnar (2016). Gary Martin hefur spilað á Íslandi með ÍA, KR og Víkingum og Valur verður því fjórða íslenska félagið hans. Hann spilaði síðast í deildinni 2016 og skoraði þá 5 mörk í 13 leikjum með Víkingum. Gary Martin er orðinn 28 ára gamall en hann lék fyrst hér á landi sumarið 2010 með ÍA í 1. deild karla. Martin hefur alls skorað 43 mörk í 93 leikjum í úrvalsdeild karla á Íslandi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“